

Valmynd
Starfsþróunarsetur BHM og Endurmenntun HÍ hafa gert samning þar sem félagsfólki aðildafélaga Starfsþróunarseturs býðst að sækja eftirfarandi námskeið hjá Endurmenntun HÍ þeim að kostnaðarlausu, haustið 2025. Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi. Þátttaka á þessum námskeiðum kemur ekki til frádráttar á styrkupphæð einstaklinga.
Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á „Mínar síður“ á vef BHM.
Allar nánari upplýsingar fyrir félagsfólk BHM má finna á meðfylgjandi slóð: NÁMSKEIÐ FYRIR FÓLK Í AÐILDARFÉLÖGUM BHM