null
Fréttir

Metfjöldi brautskráður frá EHÍ

Þann 16. júní brautskráðist metfjöldi kandidata frá Endurmenntun HÍ eða 205 manns af 5 námsbrautum. Úr Fjölskyldumeðferð brautskráðust 34, úr Jákvæðri sálfræði 37, úr Leiðsögunámi 14, úr Löggildingu til fasteigna- og skipasala 92 og 28 úr Sálgæslu. Athöfnin var ákaflega hátíðleg en eftir tvö ár af samkomutakmörkunum gátu nemendur loksins boðið aðstandendum að sitja með sér og fylgjast með athöfninni í salnum. Halla Jónsdóttir, endurmenntunarstjóri, stýrði athöfninni og í ávarpi sínu fjallaði hún m.a. um vaxandi mikilvægi símenntunar í hringiðu breytinga á atvinnumarkaði, tæknivæðinga og áherslu á nýsköpun og sjálfbærni. Slíkar aðstæður kölluðu á hraða þróun hæfni og þekkingar. Markaður símenntunar hefði líklega aldrei verið jafn blómlegur hér á landi og þar væri Endurmenntun í fararbroddi með sterka tengingu við Háskóla Íslands. Halla talaði réttilega um þær jákvæðu tilfinningar sem fylgja áfanga sem þessum og hvatti kandidatanna til að nýta sér stoltið og gleðina til að taka á móti nýjum tækifærum eftir námið.

Jón Atli Benediktsson, rektor Háskóla Íslands, flutti ávarp og talaði um hversu miklu hlutverki sí- og endurmenntun gegnir í samfélaginu. Endurmenntun tekur þetta hlutverk alvarlega og er leiðandi afl á símenntunarmarkaði og leggur metnað í að halda því forskoti með úrvali náms sem á sér enga hliðstæðu á Íslandi. Það þurfi kraft og þor til að hella sér í nám á fullorðinsaldri þegar fólk er bæði komið með fjölskyldu og fulla vinnu en að krefjandi námið styrki okkur sem manneskjur og við verðum tilbúin í hvers konar áskoranir í kjölfarið.

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra ávarpaði kandidatanna og talaði um breytta tíma í dag þegar áhugi fólks er síbreytilegur og spurningin „hvað ætlar þú að gera þegar þú verður stór“ er orðin marklaus í hafsjó möguleika sem fólki býðst á atvinnumarkaðnum. Við þurfum ekki að ákveða eina leið heldur liggur vegurinn til margra átta og hægt er að fara fram og til baka á lífsleiðinni eins og okkur sýnist.   

Að lokum ávarpaði Ingibjörg Valgeirsdóttir salinn, en hún var sjálf að útskrifast úr Jákvæðri sálfræði og sagðist finna fyrir rafmagnaðri orku í salnum meðal kandídatanna. Þeir kæmu úr mörgum mismunandi áttum en sameinuðust í ákafri forvitni og fróðleiksfýsni sem væri þeirra drifkraftur í gegnum námið. Ingibjörg þakkaði tækniframförum fyrir að gera fjarkennslu að möguleika á meðan Covid bylgjurnar gengu yfir en það sem stæði upp úr eftir námið væru tengslin sem kandidatar hefðu myndað sín á milli sem myndi fylgja þeim um ókomna framtíð.

Tónlistarkonan Lay Low flutti hugljúfa tónlist á milli ávarpa og gladdi salinn með sinni útgáfu af Eurovision laginu sínu Með hækkandi sól.

Eftir afhendingu skírteina fóru kandidatarnir í hópmyndatökur og gæddu sér síðan á veitingum áður en þeir héldu í frekari veisluhöld. Við óskum þeim öllum innilega til hamingju með þennan frábæra áfanga og vonum að þeir njóti sumarsins.  

Verð