Fara í meginmál

Heil í gegn­um umbreyt­ing­ar

Á þessu nám­skeiði færðu hag­nýt­ar að­ferð­ir til að tak­ast á við breyt­ing­ar með meiri styrk, sveigj­an­leika og til­gangi.

Breytingar eru óhjákvæmilegar í lífi og starfi, en þær eru sjaldnast þægilegar. Þær geta skapað óöryggi, hrist upp í rútínu og tekið frá okkur bæði orku og stöðugleika. Á þessu námskeiði færðu hagnýtar aðferðir til að takast á við breytingar með meiri styrk, sveigjanleika og tilgangi, hvort sem um er að ræða væntanlegar breytingar eða óvæntar aðstæður sem þú þarft að takast á við.

Námskeiðið byggir á aðferðum úr íþróttasálfræði og persónulegri reynslu kennara sem hefur þurft að takast á við margar stórar breytingar. Aðferðirnar eru yfirfærðar á daglegt líf á lifandi og skemmtilegan hátt. Í námskeiðinu er farið í hvernig við getum brugðist við á þremur lykil tímasetningum: Áður en breytingar verða, á meðan á þeim stendur og eftir að þær hafa gengið yfir. Þú færð hagnýt verkfæri sem þú getur nýtt þér og vinnubók sem leiðir þig í gegnum að tengja þau við þitt eigið líf. Markmiðið er að hjálpa þér að upplifa meiri stjórn, líða betur og dafna í gegnum breytingar.

Námskeiðið hentar öllum sem vilja verða betri í að takast á við breytingar í vinnu eða einkalífi, óháð starfsgrein eða bakgrunni. Það er sérstaklega gagnlegt fyrir fólk sem vill vaxa og dafna í gegnum breytingar, stórar sem smáar.

Netnám

1 klst.

Hvar og hvenær sem er

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

19.900 kr.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.