Fara í meginmál

Um okkur

End­ur­mennt­un Há­skóla Ís­lands

End­ur­mennt­un Há­skóla Ís­lands er lif­andi vett­vang­ur sem teng­ir Há­skóla Ís­lands, at­vinnu­líf og sam­fé­lag og skap­ar fjöl­breytt um­hverfi náms fyrir öll þau sem vilja efla hæfni og þekk­ingu í lífi og starfi.

Mynd af húsnæði skólans
Um Endurmenntun

Hlut­verk End­ur­mennt­un­ar HÍ er að stuðla að betra sam­fé­lagi með því að efla þekk­ingu og hæfni, tengja fólk og skapa tæki­færi.

Fagráð

Fagráð Endurmenntunar HÍ eru sex talsins. Þau eru ráðgefandi bakland við þróun námsframboðs sem og álitsgjafi varðandi íslenska og erlenda kennara og fyrirlesara. Í þeim situr öflugur hópur fagfólks úr opinbera og einkageiranum sem á það sameiginlegt að hafa áhuga á þróun og nýjungum á viðkomandi fagsviði.

Grænu skref­in

Birkitré við norðurhlið húss Endurmenntunar HÍ

Endurmenntun Háskóla Íslands tekur þátt í grænum skrefum fyrir ríkisstofnanir sem miðar að því að draga úr neikvæðum umhverfisáhrifum af starfsemi sinni og efla umhverfisvitund starfsmanna.

Í ljósi þess vill Endurmenntun HÍ biðja þátttakendur að hafa eftirfarandi atriði í huga:

  • Við hvetjum viðskiptavini okkar til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar komið er til okkar á Dunhaga 7.
  • Bílastæði næst aðalinngangi eru sérmerkt fyrir hreyfihamlaða.
  • Hjólagrindur eru fyrir framan aðalinngang.
  • Strætó stansar við flestar byggingar Háskóla Íslands. Kynntu þér leiðarkerfi og tímatöflu strætó.
  • Allt rusl sem til fellur í húsnæði Endurmenntunar er flokkað og sett í viðeigandi merktar fötur.
  • Þátttakendur eru hvattir til að mæta með eigin bolla/brúsa fyrir kaffi og vatn.

Starf­sem­is­skýrsla 2025

Hér má skoða starfsemisskýrslu Endurmenntunar Háskóla Íslands fyrir árið 2025.

Endurmenntun HÍ nýtur engra opinberra fjárframlaga og er rekstur Endurmenntunar HÍ því eingöngu byggður á eigin tekjum s.s. náms- og námskeiðsgjöldum.

Side of the building of Endurmenntun, green grass and plants.
Front door of building
Pavement, trees, houses
Some people

Starfs­fólk

Hjá Endurmenntun HÍ starfa um 18 starfsmenn í 15 stöðugildum á hverjum tíma fyrir sig, sem búa yfir sérhæfðri reynslu og menntun á sviði fræðslumála.

Sjá meira
Stjórn Endurmenntunar HÍ 2026

Stjórn

Stjórn Endurmenntunar HÍ er skipuð fulltrúum Háskóla Íslands sem eru valdir af háskólaráði til þriggja ára. Stjórn Endurmenntunar HÍ er skipuð fulltrúum Háskóla Íslands sem eru valdir af háskólaráði til þriggja ára.

Sjá meira

Merki End­ur­mennt­un­ar HÍ

Hér má nálgast merki Endurmenntunar HÍ á ensku og íslensku, í hvítu og bláu (.png/.svg).

Sam­starfs­að­il­ar

Endurmenntun Háskóla Íslands á í formlegu samstarfi við fjölmörg félög, fyrirtæki og stofnanir. Formlegum samstarfssamningum hefur fjölgað jafnt og þétt að undanförnu og eru á fjölbreyttum sviðum samfélagsins. Samstarfið byggist á gagnkvæmum hagsmunum samstarfsaðila, gæðum, sveigjanleika og góðum samskiptum.

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.