Mannauðs­mál frá A til Ö

5 stjörnur
Vand­að og ít­ar­legt nám­skeið þar sem fjall­að er um mannauðs­mál af öllu tagi, allt frá ráðn­ingu til starfs­loka.

Á námskeiðinu er fjallað er um hagnýt atriði mannauðsstjórnunar með skýrum hætti. Stjórnendur standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna breytinga á starfsumhverfinu, en í þeim liggja jafnframt fjölmörg tækifæri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velferð starfsmanna og fjölbreytileiki eru á meðal umfjöllunarefna.

Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust og færni stjórnenda með mannaforráð, m.a. til að leiða einstaklinga og teymi á hvetjandi og uppbyggilegan hátt til aukins árangurs. Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að nýta sér hagnýtar aðferðir mannauðsstjórnunar í starfi sem stjórnendur og stuðla að eigin starfsþróun í síbreytilegu starfsumhverfi.

Námskeiðið er einkum sniðið að stjórnendum sem ekki hafa sérstaka menntun í mannauðsstjórnun og stjórnendum smærri fyrirtækja sem ekki eru með sérstaka mannauðsdeild, en einnig öllum nýjum stjórnendum og millistjórnendum sem vilja efla hæfni sína í mannauðsstjórnun. Efnið nýtist í raun öllum sem vilja tileinka sér fagleg vinnubrögð innan skipulagsheilda og stuðla að heilbrigðu og öflugu starfsumhverfi.

„Tek mikið út úr þessu frá­bæra nám­skeiði sem ég mæli ein­dreg­ið með. Kenn­ar­ar og gesta­fyr­ir­les­ar­ar framúrsk­ar­andi góðir og virki­lega gott að fá þessa teng­ingu við at­vinnu­líf­ið."

Staðnám

9. september – 2. desember 2026

42 klst. – 7 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

9. september kl. 9:00 – 15:30

23. september kl. 9:00 – 15:30

7. október kl. 9:00 – 15:30

28. október kl. 9:00 – 15:30

11. nóvember kl. 9:00 – 15:30

25. nóvember kl. 9:00 – 15:30

2. desember kl. 9:00 – 15:30

Kenn­ar­ar
Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð
390.000 kr.
Skrá mig

Ég hef áhuga

Mannauðsmál frá A til Ö

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.