Fara í meginmál

Byrj­aðu í golfi - fyrir byrj­end­ur og lengra komin

5 stjörnur

Á nám­skeið­inu verð­ur farið í alla þá grunn­þætti sem nauð­syn­leg­ir eru fyrir fyrstu skref­in á golf­vell­in­um.

Í samstarfi við Hissa, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð um golf

Nú er hægt að byrja í golfi í Endurmenntun HÍ. Á þessu sívinsæla námskeiði eru grunnatriðin í golfi kennd með Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegið í gegn út um allan heim. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, æfinga og leikja.

Golf er vinsæl íþrótt meðal allra aldurshópa og það er hægt að byrja að spila golf hvenær sem er á lífsleiðinni. Á námskeiðinu verður farið í alla þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru fyrir fyrstu skrefin á golfvellinum.

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra grunnhreyfingar og kynnast siðum og venjum í golfi við þægilegar aðstæður og fyrir þá sem vilja kynna sér sérstaklega SNAG kerfið. Eftir námskeiðið eru þátttakendur betur undirbúnir undir áframhaldandi golfkennslu hjá golfkennurum og t.d. til að taka þátt í skemmtigolfmótum.

„Annað nám­skeið­ið sem ég fer á og fyrsta kort­er­ið var ég búin að læra meira en á öllu hinu nám­skeið­inu sem var einnig fjög­ur skipti. Takk fyrir mig ég er í skýj­un­um með þetta."

Staðnám

31. ágúst – 3. september 2026

6 klst. – 3 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

31. ágúst kl. 20:00 – 22:00

2. september kl. 20:00 – 22:00

3. september kl. 20:00 – 22:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

5 laus pláss

Verð

38.900 kr.

Snemmskráning: 23. ágúst. Almennt verð: 42.800 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Byrjaðu í golfi - fyrir byrjendur og lengra komin

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.