

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 18. og fös. 19. sept. kl. 08:30 - 12:00
Sverrir Heiðar Davíðsson
Pétur Már Sigurðsson
Kristján Gíslason
Endurmenntun Háskóla Íslands
Þetta námskeið inniheldur allt sem þú þarft til þess að koma þér af stað með ChatGPT. Námskeiðið er yfirgripsmikið og vandlega hannað af sérfræðingum fyrirtækisins Javelin AI, sem búa að mikilli reynslu í að skapa verðmæti með gervigreind, Sverri Heiðari Davíðssyni, Kristjáni Gíslasyni og Pétri Má Sigurðssyni. Markmið námskeiðsins er að byggja sjálfstraust og sjálfstæði þátttakenda í notkun gervigreindar og opna þar með á ný tækifæri og möguleika í starfi og einkalífi.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að kynna fjölbreyttar leiðir til að nýta ChatGPT. Ekki er kafað djúpt í einstök svið eins og forritun, markaðssetningu eða rannsóknir heldur er lögð áhersla á að gefa þátttakendum góða undirstöðuþekkingu og yfirsýn á möguleikum með ChatGPT í fjölbreyttum verkefnum. Markmiðið er að þátttakendur hafi nægan skilning til að geta yfirfært lærdóminn á eigin verkefni.
Hvorum degi er skipt í tvo hluta og hver hluti samanstendur af fyrirlestri og æfingum. Nægur tími verður fyrir spurningar, umræður, aðstoð og pásur.
Athugið að uppfærslur eru reglulegar á ChatGPT líkaninu og hinum ýmsum tólum innan þjónustunnar. Námsefnið er alltaf uppfært eins fljótlega og hægt er en námskeiðslýsingin er ekki alltaf uppfærð samhliða breytingum.
Dagur 1 - Grunnur og samskipti við gervigreind:
Á fyrsta degi námskeiðsins er lögð áhersla á skilning á spunagreind og ChatGPT. Ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur skilji eða hafi notað ChatGPT eða önnur gervigreindartól. Byrjað er frá grunni með almennri kynningu á ChatGPT, notendaviðmótinu, stillingum og helstu hugtök útskýrð. Einnig er kynnt hvernig er gagnlegt að hugsa um tæknina þannig að þátttakendur skilji hvernig ChatGPT er frábrugðið annarri tækni, t.d. leitarvélum, reiknivélum og þýðingartólum. Farið er yfir ýmsar takmarkanir og veikleika ChatGPT. Farið er yfir mörg sýnidæmi og þátttakendur gera einfaldar en fjölbreyttar æfingar undir leiðsögn kennara til að sjá hversu yfirgripsmikil þekking og færni ChatGPT er á ýmsum sviðum og til að læra áhrifaríkar leiðir til að nota tæknina.
Dagur 2 – Notkun tóla og gagna í ChatGPT:
Annar dagurinn snýst um að læra á hin ýmsu tól sem ChatGPT býður upp á. Sýnt er hvernig ChatGPT getur skilið, túlkað og búið til myndrænt efni á hagnýtan hátt og átt samtöl með rödd. Farið er yfir greiningu og myndræna framsetningu á gögnum. Einnig er farið yfir hvernig hægt er að nota ChatGPT í stærri verkefnum þar sem þörf er á mikilli upplýsingaöflun eða notkun margra tóla samtímis. Þátttakendur fá að sjá fjölbreytt sýnidæmi og vinna svo í verkefnum sem krefjast notkunar á ýmsum tólum.
Þetta námskeið er ætlað fjölbreyttum markhópi og er fyrir alla sem hafa áhuga á gervigreind og vilja læra að nota ChatGPT í starfi. Námskeiðið er fyrir byrjendur sem vilja læra á þau fjölbreyttu tól sem fylgja ChatGPT, frekar en fyrir reynda notendur sem stefna að því að dýpka sérþekkingu sína í tilteknum tæknilegum þáttum. Fyrir reynda notendur mælum við með framhaldsnámskeiðinu: Hagnýtar gervigreindarlausnir - framhaldsnámskeið
Markhópar sem gætu notið góðs af námskeiðinu:
Fagfólk í hvaða geira sem er: Hvort sem þú ert í fjármálum, heilbrigðisþjónustu, menntun eða einhverju öðru, getur færni á ChatGPT gjörbreytt því hvernig þú nálgast áskoranir og leysir vandamál í þínu fagi.
Stjórnendur og leiðtogar: Bættu stefnumótun þína með aðstoð ChatGPT, bættu skilvirkni teymisins vertu leiðandi í nýsköpun.
Námsmenn og áhugasamir: Náðu betri árangri í námi þínu, flýttu fyrir lærdómi og notaðu ChatGPT sem einkakennara í nánast hvaða fagi sem er.
Skapandi fólk og hönnuðir: Kannaðu hvernig ChatGPT getur aðstoðað við sköpunarferlið þitt og opnað nýjar leiðir til nýsköpunar.
Kennarar og þjálfarar: Fléttaðu ChatGPT inn í kennsluaðferðir þínar með gerð og yfirferð verkefna eða við gerð áætlana til að bæta upplifun nemenda eða iðkenda. Bættu skilning þinn á tækninni sem margir nemendur eru þegar farnir að nota.
Reiknað er með því að þátttakendur séu sjálfbjarga þegar kemur að tölvuvandamálum sem tengjast ekki notkun á ChatGPT. Mikilvægt er að þátttakendur séu búnir að ganga frá skráningu og kaupum á áskrift að ChatGPT fyrir námskeiðið því ekki gefst nægur tími á meðan námskeiðinu stendur til að aðstoða þátttakendur við slíkt.
Nauðsynlegt er að vera með fartölvu. ChatGPT er þjónusta sem notuð er í gegnum netið á vefsíðu og krefst ekki öflugrar tölvu til að nota.
Sæmileg tölvukunnátta er nauðsynleg, þátttakendur verða að vera búnir að fara sjálfir á síðuna, búa sér til aðgang og greiða fyrir einn mánuð af ChatGPT áskrift (t.d. Plus eða Team) áður en námskeiðið byrjar (mánaðaráskrift kostar tæplega 3500 ISK).
Vinsamlegast athugið að til eru ýmsar eftirlíkingar eða svipaðar þjónustur sem koma upp þegar leitað er að ChatGPT og þátttakendur ættu að gæta þess að skrá sig í rétta þjónustu. Fyrir leiðbeiningar um hvernig á að skrá sig í ChatGPT smelltu hér.
Viðtal við kennarana um námskeiðið má finna hér: Gervigreind á að vera aðgengileg og bæta samfélagið.
Sverrir Heiðar Davíðsson er hugbúnaðarverkfræðingur og annar stofnandi fyrirtækisins Javelin AI, sem sérhæfir sig í fræðslu, ráðgjöf og verkefnum sem snúa að gervigreind. Sverrir er með M.Sc. í gervigreind og gagnavísindum frá DTU og B.Sc. í hugbúnaðarverkfræði frá HÍ og hefur verið að vinna með gervigreind síðan 2018.
Pétur Már Sigurðsson starfar sem sérfræðingur innleiðingar gervigreindarlausna hjá Javelin AI. Hann hefur yfir 6 ára reynslu af hugbúnaðarþróun og hefur hannað og forritað gervigreindarlausnir í 3 ár.
Kristján Gíslason er með BS og MS gráður í iðnaðarverkfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur yfir 3 ár af reynslu af umbótum og stafvæðingu ferla í framleiðslu og þungaiðnaði. Hefur kennt námskeið í gæðastjórnun, straumlínustjórnun og aðferðafræði við lausn verkefna.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.