null
Fréttir

184 útskrifuð af sjö námsbrautum

Síðastliðinn föstudag voru 184 brautskráð frá Endurmenntun Háskóla Íslands. Athöfnin fór fram í Háskólabíói og að þessu sinni var um að ræða námsbrautirnar jákvæða sálfræði, verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun, leiðsögunám, sálgæslu, ökukennaranám, sérnám í hugrænni atferlismeðferð og löggildingu fasteigna- og skipasala.

Félagar í Lúðrasveitinni Svani spiluðu létt íslensk dægurlög í anddyrinu og tóku þannig vel á móti fjölda góðra gesta sem var viðstaddur athöfnina.

Hildur Elín Vignir endurmenntunarstjóri bauð öll velkomin í opnunarræðu sinni og þá ávarpaði Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor Háskóla Íslands, einnig samkomuna.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, flutti hátíðarræðu. Þar sagði hann meðal annars: „Við lifum jú á tímum þar sem tæknin þróast með gríðarlegum hraða, og vinnumarkaðurinn fylgir í kjölfarið. Ný störf verða til, önnur hverfa, og það sem við lærðum fyrir tíu árum getur verið úrelt á morgun. Sama hver ástæðan er fyrir því að þið sitjið hérna í dag þá hafið þið öll sýnt af ykkur framtakssemi, hugrekki og þrautseigju - eiginleika sem eru lykillinn að því að takast á við framtíð sem enginn getur spáð nákvæmlega fyrir.“

Tónlistarkonan Marína Ósk flutti falleg lög á milli atriða og kom öllum í hátíðlega stemningu.

Við hjá Endurmenntun Háskóla Íslands óskum öllum útskriftanemum okkar innilega til hamingju og vonum að þekkingin, færnin og verkfærin sem þið hafið öðlast opni ykkur nýja möguleika - og að tengslin ykkar á milli haldist áfram, því þau eru ómetanleg.

Hér eru nokkrar myndir frá athöfninni.

Hildur Elín Vignir

Steinunn Gestsdóttir

Logi Einarsson

Heiða Ingólfsdóttir

Hópurinn úr sálgæslu fagnaði vel eftir afhendingu skírteina

Skemmtileg stemning

Ástvinir og gestir voru á ýmsum aldri

Gleði og tilhlökkun

Mikil ánægja með brautskriftina í ár

Tónlistarkonan Marína Ósk

Hópurinn úr jákvæðri sálfræði söng fyrir gesti og aðra útskriftarnemendur

Útskrifarnemar úr leiðsögunámi

Útskrifarnemar úr löggildingarnámi fasteigna- og skipasala

Útskriftarnemar úr sérnámi í hugrænni atferlismeðferð

Útskriftarnemar úr sálgæslu

Útskriftarnemar úr jákvæðri sálfræði.

Útskriftarnemar úr verkefnastjórnun og leiðtogaþjálfun

Útskriftarnemar úr ökukennaranámi til almennra réttinda

Verð