

Valmynd
Endurmenntun Háskóla Íslands hlaut nýverið viðurkenningu vegna mats á námsbrautinni Leiðsögunám - áfangastaðurinn Ísland. Viðurkenningin staðfestir að námið samræmist Evrópustaðlinum ÍST EN 15565:2008 – Tourism services. Requirements for the provision of professional tourist guide training and qualification programmes sem fjallar um kröfur til hæfni og þjálfunar leiðsögumanna. Matið var framkvæmt af BSI á Íslandi fyrir VR - Deild leiðsagnar.
Í tilefni af afhendingu viðurkenningarinnar komu saman fulltrúar fræðslumiðstöðva sem bjóða upp á leiðsögunám. Þar fór fram einstaklega áhugaverð og þörf umræða um menntun leiðsögufólks á Íslandi.
Viðurkenningin er mikilvæg staðfesting á því að námsbrautin Leiðsögunám - áfangastaðurinn Ísland hjá Endurmenntun Háskóla Íslands uppfyllir kröfur um gæði og fagmennsku. Það er sérstaklega ánægjulegt að sjá markvissa uppbyggingu námsins endurspeglast með þessum hætti, enda lögð rík áhersla á að nemendur fái traustan faglegan grunn sem nýtist þeim í starfi. Við tökum stolt á móti viðurkenningunni og lítum á hana sem hvatningu til að halda áfram að þróa námið í takt við framtíð greinarinnar og þarfir leiðsögufólks á Íslandi.
*Á myndinni sjáum við Jónu Svandísi Þorvaldsdóttur, verkefnastjóra Leiðsögunámsins hjá Endurmenntun HÍ með viðurkenningarskjalið.