

Valmynd
Við erum ákaflega stolt af því að tilkynna nýtt samstarf milli Atlas Primer og Endurmenntunar Háskóla Íslands. Þetta samstarf miðar að því að innleiða nýja kynslóð þjálfunar með Roleplay lausninni, sem gerir þátttakendum kleift að æfa krefjandi samtöl og raunverulegar aðstæður áður en þær eiga sér stað.
Með Atlas Primer Roleplay geta þátttakendur í námskeiðum EHÍ æft samskipti í samtölum sem byggja á raunverulegum sviðsmyndum. Þetta er skref markar tímamót fyrir símenntun á Íslandi, þar sem gervigreind er nýtt til að styðja við færniþjálfun til viðbótar við hefðbundnar kennsluaðferðir.
Það sem gerir þetta samstarf sérstaklega mikilvægt er hin framsækna sýn Endurmenntunar Háskóla Íslands. Það er gríðarlega þýðingarmikið að EHÍ sé fyrst fræðsluaðila á Íslandi til að bjóða upp á þessa nýjung í sínum námskeiðum. Með þessu skrefi sýna þau að þau eru sannir brautryðjendur ásamt okkur hjá Atlas Primer við að móta framtíð fræðslu.
„Við lærum mest þegar við stöndum frammi fyrir krefjandi aðstæðum í fyrsta skipti. Með þessari tækni getum við æft þær aðstæður fyrirfram, og það breytir öllu. Þetta snýst ekki bara um tækni, heldur um að hjálpa fólki að ná meiri árangri í samskiptum og starfi,“ segir Hinrik Jósafat Atlason, framkvæmdastjóri Atlas Primer.
Hildur Elín Vignir, forstöðumaður Endurmenntunar Háskóla Íslands, tekur í sama streng: „Með þessu samstarfi gefst þátttakendum námskeiða Endurmenntunar einstakt tækifæri til að þjálfa færni sína í samskiptum með aðstoð gervigreindar og er okkur mikil ánægja að verða fyrsta fræðslustofnunin á Íslandi sem býður upp á þessa viðbót við hefðbundnar kennsluaðferðir.“
Fyrstu námskeiðin sem nýta lausnina verða sett af stað hjá EHÍ í apríl. Markmiðið er að safna reynslu og byggja upp grunn að mun stærri innleiðingu á komandi misserum, með það að leiðarljósi að gera slíka þjálfun að eðlilegum hluta námsframboðsins.
Við hlökkum mikið til samstarfsins sem mun skapa ný tækifæri til að þróa samskiptafærni, leiðtogahæfni og faglega getu á íslenskum vinnumarkaði.