null
Fréttir

Nemendur og ástvinir fögnuðu mikilvægum tímamótum

Útskriftarnemar Endurmenntunar EHÍ og ástvinir þeirra fögnuðu innilega saman mikilvægum tímamótum í hátíðarteiti í Háskólabíói eftir að brautskráningu lauk á föstudag. Eins og fram kom í ávörpum og ræðum hátíðargesta er um að ræða stóráfanga í lífi hvers og eins nemendanna. Lífið gangi sinn vanagang á meðan, með sínum hæðum og lægðum og miklar andlegar og vitsmunalegar þrekraunir séu að baki; metnaður, þrautseigja og skipulag. Þá sé stuðningur ástvina oft ómetanlegur og getur skipt sköpum.

Ósk okkar hjá Endurmenntun HÍ er að veganestið sem þessi góði hópur fer með út í lífið héðan einkennist af stolti, þroska, ánægju, góðum minningum og alls kyns félagslegum tengingum sem gefa fjölbreytta möguleika í framtíðinni.

Myndirnar tók Eva Ágústa Aradóttir.

Verð