Fara í meginmál

For­eldra­við­tal­ið - skýr­leiki og traust

Viltu auka hæfni þína og fá tæki og tól í hend­urn­ar sem nýt­ast í for­eldra­sam­tal­inu til að eiga góð og skýr sam­skipti?

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur fái aukinn skilning á því hvaða þættir eru mikilvægir til að eiga gagnlegt samtal. Hvernig getum við sett okkur í spor þess sem við ræðum við og pössum upp á að gæta sálræns öryggis? Námskeiðið er hannað fyrir kennara sem vilja styrkja færni sína í samskiptum við foreldra í foreldraviðtölum. Einnig verður fjallað um hvernig á að takast á við gagnrýni á faglegan og uppbyggilegan hátt.

Foreldrasamtölin eru mismunandi og geta snúið að frammistöðu sem þarf að bæta, samskipti sem þarf að vinna með eða annað sem mikilvægt er að sé rætt og tengist velferð og árangri nemandans. Margir veigra sér svo við að ræða það sem er óþægilegt og á námskeiðinu er farið yfir hvernig við getum aukið hæfni kennara til að undirbúa sig og leiða samtöl á faglegan hátt með því að gefa þeim réttu verkfærin og tólin.

Námskeiðið byggir á aðferð markþjálfunar að hluta og eru aðferðir markþjálfunar dýrmæt tól sem hægt er að nýta í foreldraviðtölum til að auka áhrif og árangur samtalanna. Lögð er áhersla verklegar æfingar og hópavinnu þar sem þátttakendur deila reynslu sinni og fá rými til að spegla sig og fá endurgjöf.

Námskeiðið er sérlega miðað að þörfum kennara á öllum skólastigum sem vilja bæta samskiptafærni sína og hæfni í að leiða foreldraviðtöl á faglegan hátt.

Staðnám

13. ágúst 2026

4 klst. – 1 skipti

Endurmenntun Háskóla Íslands

Dag­skrá

13. ágúst kl. 9:00 – 13:00

Kenn­ari

Styrk­ur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?

Verð

32.900 kr.

Snemmskráning: 4. ágúst. Almennt verð: 36.200 kr.

Skrá mig

Ég hef áhuga

Foreldraviðtalið - skýrleiki og traust

Ég hef áhuga á að vita þegar námskeiðið verður haldið næst.

Tengd nám­skeið

Vef­kökustill­ing­ar

Við notum vefkökur (Google Analytics) til að greina umferð á síðunni.