

Valmynd
Gefðu gjafabréf hjá Endurmenntun HÍ: Upplifun sem gleður og eflir þann sem þiggur!

Mán. 4. og 11. maí kl. 19:30 - 21:30 og fim. 14. maí kl. 16:30 - 18:30 (3x)
6 klst. 
Sólveig Ólafsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands
Matarvenjur Reykvíkinga tóku miklum breytingum á 20. öld, í takt við tækniframfarir, breyttar aðstæður í heimilishaldi og aukin áhrif utan úr heimi. Á þessu námskeiði er rýnt í hvernig eldhúsið og daglegt matarumhverfi borgarbúa mótaðist af samfélagsbreytingum, skorti og ofgnótt, verslunarsögu og tíðaranda.
Námskeiðið samanstendur af tveimur fyrirlestrum (2 × 2 klst.) með myndasýningu og sögulegum dæmum, og leiðsagnargöngu um miðborg Reykjavíkur þar sem farið er um fæðuhring borgarinnar og stoppað við valda staði. Gangan er létt og tekur mið af fjölbreyttum þátttakendahópi.
Námskeiðið er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á mat, menningu og sögu Reykjavíkur. Hentar einnig þeim sem starfa við menningu, ferðaþjónustu, fræðslu eða borgarsögu.
Dr. Sólveig Ólafsdóttir er rannsakandi við Sagnfræðistofnun Háskóla Íslands og fyrrverandi framkvæmdastjóri sýningarinnar Reykvíska eldhúsið.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.