Staðnámskeið

Örverusamfélag manna

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mið. 4. feb. kl. 8:30 - 16:30

8 klst.

Helga M Ögmundsdóttir

Erna Milunka Kojic

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 54.900 kr.
Snemmskráning til og með 26. janúar. Almennt verð er 60.400 kr.
Námskeið

Talsvert hefur verið rætt og ritað um þarmaflóru og heilsu á undanförnum árum. Flestir vita nú orðið að örverur í mannskepnunni eru fleiri að tölu en líkamsfrumurnar. Þær búa víðar en í þörmunum og eiga samskipti við hýsil sinn til góðs og ills. 

Á námskeiðinu Örverusamfélag manna - Samskipti örvera við hýsil sinn til góðs og ills verður fjallað um ólík örverusamfélög á mismunandi búsvæðum mannslíkamans. Undanfarinn áratug hefur tækni sem lýtur að greiningu örvera fleygt fram svo um munar. Þannig hefur stóraukist þekking okkar á örverusamfélaginu, bæði umfangi og samsetningu. Hvar og hvernig setjast örverur að? Hvað ræður því? Sambúðin - sambýli vs. sambúð (commensalismi/symbiosis), heilsufar, sjúkdómar og dysbiosis” Hvað hefur áhrif á örverusamfélagið? Hvernig hefur örverusamfélagið áhrif á heilbrigði og sjúkdóma.

Heilbrigt örverusamfélag í hraustum líkama!

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Örverusamfélög í og á mannslíkamanum.
  • Sambúð, sambýli og dysbiosis.
  • Tilurð í bernsku, áhrif sýklalyfja og mataræðis.
  • Tengsl örverusamfélags við sjúkdóma.
  • Samskipti við ónæmiskerfið.
  • Heilbrigt örverusamfélag og viðhald þess.

Ávinningur þinn

  • Að fræðast um örverusamfélag mannslíkamans umfram það sem í daglegu tali er kallað þarmaflóra.
  • Að gera sér grein fyrir mikilvægi fyrsta æviskeiðisins í sambúð við örverur.
  • Að skilja mun á sambýli og samlífi við örverur.
  • Að skilja hugtakið dysbiosis.
  • Að fá innsýn í samskipti sem hafa áhrif á heilsu og sjúkdóma.

Fyrir hverja

Heilbrigðisstéttir, líffræðingar, umhverfisfræðingar. Gert verður ráð fyrir grunnþekkingu á líffræði örvera og grundvallarstarfsemi ónæmiskerfisins.

Nánar um kennara

Erna Milunka Kojic er yfirlæknir smitsjúkdómadeilar Landspítala. Hún hefur áratuga reynslu á sviði smitsjúkdóma bæði í klínískri vinnu, kennslu og rannsóknum, lengst af í Bandaríkjunum (Brown Háksólann í Rhode Island og Mount Sinai í New York). Hún hefur sérstakan áhuga á örverum og áhrifum þeirra á mannslíkamann.

Helga M. Ögmundsdóttir er prófessor emerita við læknadeild HÍ. Hún kenndi frumulíffræði og ónæmisfræði við læknadeild og tannlæknadeild um áratuga skeið. Rannsóknir hennar eru á sviði krabbameinsfræða og ónæmisfræði.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Örverusamfélag manna

Verð
54900