Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 21. nóv. kl. 09:00 - 12:00
3 klst.Atli Þór Kristbergsson
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Microsoft Teams, ásamt öðrum Microsoft 365 (M365) afurðum hefur verið innleitt hjá fjölda fyrirtækja, stofnana og sveitarfélaga enda frábært tæki til að halda utan um teymi, fjarfundi, deila gögnum, spjalla (e. chat) og margt fleira.
Færri vita af Microsoft Planner og því sem það hefur fram að færa en með því má skipuleggja verkefni, útdeila verkþáttum, virkja áminningar og sjá framvindu verkefna frá mælaborði.
Með Microsoft Planner getur þú og teymið þitt sett fram áætlun um verkefni, deilt út verkþáttum, átt í samskiptum ykkar á milli og séð framvindu verkþátta frá mælaborði.
Haldið utan um fundargerðir, verið með upplýsingasíðu og fleira tengt verkefninu.
Þetta námskeið fjallar fyrst og fremst um hvernig þú getur nýtt þér Planner við skipulag og verkefnastjórnun og tengingu Planner við Teams.
Námskeiðið er ætlað notendum Microsoft 365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur. Hér er áherslan á verkefni, verkefnastjórn og önnur samskipti innan verkefnateymis. Gert er ráð fyrir að þátttakendur hafi þekkingu á Teams og/eða hafi lokið grunnnámskeiðinu, Microsoft Teams & OneDrive hjá EHÍ.
Gott er að hafa aðgang að Microsoft Teams meðan á námskeiðinu stendur frá vinnustöð eða í gegnum vafra.
Atli Þór Kristbergsson hefur starfað við upplýsingatækni frá árinu 1998, fyrst sem kerfis- og vefstjóri og sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar Íslandsbanka svo eitthvað sé nefnt. Á síðari árum hefur hann einkum sinnt kennslu, ráðgjöf og vefsíðugerð.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.