Fjarnámskeið

Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin


Fullbókað - Biðlisti í síma 525 4444

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán. 17. mars kl. 12:30 - 16:30.

4 klst.

Sveinbjörn Jónsson

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 32.900 kr.
Snemmskráning til og með 6. mars. Almennt verð er 36.200 kr.
Námskeið

Námskeið 6. mars. (fullbókað) 

Námskeið 12. mars (fullbókað)

Námskeið 17. mars (fullbókað)

Námskeið 19. mars (fullbókað)

Námskeið 21. mars

Námskeið 1. apríl

Á námskeiðinu er farið í grunninn á verkefnastjórnun sem og hvað verkefnastjórnun er og hvar hún getur nýst. Áhersla er á undirbúning og eftirfylgni verkefna til að tryggja árangur. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hvernig hægt er að beita verkefnastjórnun á lítil sem stór verkefni.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Skilgreiningu á hvað er verkefni og hvað er verkefnastjórnun.
  • Undirbúning verkefna og ræs.
  • Hvernig skilgreina á markmið verkefna og hvernig árangur er metinn.
  • Uppsetning verkefnis: Hvernig tíma- og kostnaðaráætlanir líta út.
  • Eftirfylgni verkefnisáætlunar.
  • Skil og lúkning verkefna.

Ávinningur þinn

  • Að auka skilning á verkefnastjórnun og leiðum til betri árangurs.
  • Að þróa hæfni í að taka við verkefnum og leysa þau.

Kennslufyrirkomulag

Kennsla fer fram með fyrirlestrum og umræðum. Tekin verða fyrir hagnýt og raunveruleg verkefni sem flestir ættu að geta samsvarað sig við.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla þá sem hafa áhuga á að kynna sér verkefnastjórnun og hvaða árangri er hægt að ná.

Aðrar upplýsingar

Athugið - ef þátttakandi sækir bæði Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin og Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun á tveimur samliggjandi misserum er veittur 20% afsláttur af seinna námskeiðinu.

Nánar um kennara

Sveinbjörn Jónsson, M.Sc. í verkfræði og MPM. Sveinbjörn starfar sem verkefnastjóri hjá ÍAV.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin

Verð
32900