

Valmynd
Námið hefst 20. ágúst 2025 og lýkur með útskrift í júní 2027.
Í samstarfi við lagadeild Háskóla Íslands og byggir á lögum um sölu fasteigna og skipasölu nr. 70/2015.
Námið samsvarar 90 ECTS einingum.
Réttindanám til löggildingar fasteigna- og skipasala er fjögurra missera námsbraut sem undirbýr þá sem ætla sér að sækja um löggildingu til fasteigna- og skipasölu og aðra þá sem vilja öðlast meiri þekkingu á þessu sviði.
Alla jafna er eitt námskeið kennt í einu og því lýkur með prófi og/eða verkefni áður en næsta námskeið hefst. Námið byggir á fyrirlestrum á neti og vinnustofum. Nemendur þurfa að mæta í vinnustofur í hverju námskeiði, ýmist í kennslustofu eða á netinu í rauntíma og fjöldi þeirra fer eftir umfangi námskeiða. Í upphafi hvers misseris fá nemendur upplýsingar um dag- og tímasetningar og form vinnustofanna. Á fjórða misseri má gera ráð fyrir fleiri vinnustofum í námskeiðum og því aukinni viðveru nemenda í kennslustofu.
Námsmat námskeiða byggir á verkefnavinnu, prófum og virkni. Nemandi telst ekki hafa staðist námskeið hljóti hann lægri einkunn en 6. Rétt til að hefja nám á öðru, þriðja og fjórða misseri hljóta nemendur sem hafa staðist öll námskeið næsta misseris á undan með a.m.k. 7 í meðaleinkunn.
Áslaug Björt Guðmundardóttir, verkefnastjóri hjá Endurmenntun HÍ.
Gunnar Atli Gunnarsson, aðjúnkt við lagadeild HÍ.
Grétar Jónasson, framkvæmdastjóri Félags fasteignasala.
Jóhanna Rútsdóttir, námsstjóri Endurmenntunar HÍ.
Kristín María Gunnarsdóttir, löggiltur fasteigna-, fyrirtækja- og skipasali.
Sigurlaug María Hreinsdóttir, verkefnastjóri hjá Endurmenntun HÍ.
Inntökuskilyrði í nám til löggildingar fasteigna- og skipasala er stúdentspróf eða sambærileg menntun – a.m.k. af þrepi 3 í hæfniramma um íslenska menntun.
Umsækjendur þurfa að hafa færni í íslensku sem samsvarar að lágmarki B2 skv. evrópska tungumálarammanum.
Færni í íslensku telst staðfest með íslensku stúdentsprófi eða sambærilegu námi á þriðja hæfniþrepi samkv. hæfniramma um íslenska menntun.
Umsækjendum sem ekki geta staðfest færni sína í íslensku á ofangreindan máta verður boðið upp á stöðumat sem fram fer í júní og framkvæmt er af viðurkenndum prófunaraðila fyrir Endurmenntun HÍ.
Skilyrði þess að geta öðlast löggildingu sem fasteigna- og skipasali eru tilgreind í 3. gr. laga nr. 70 frá 2015.
Umsóknir eru metnar af fagráði. Með umsókn þarf að fylgja:
Hægt er að semja um greiðslufyrirkomulag áður en nám hefst. Nánari upplýsingar um greiðslufyrirkomulag má sjá hér.
Nánari upplýsingar um námið má finna í námsvísi (PDF).
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.