Facebook Pixel

Námskeið fyrir félagsfólk Starfsþróunarseturs BHM

Efnis mynd

Starfsþróunarsetur BHM og Endurmenntun HÍ hafa endurnýjað samning sinn þar sem félagsfólki Starfsþróunarseturs býðst að sækja valin námskeið hjá Endurmenntun HÍ. Samningurinn verður nú með breyttu sniði en nú gefst hverjum einstaklingi færi á að sækja eitt námskeið sér að kostnaðarlausu. Námskeiðin sem um er að ræða eru sérstaklega valin þannig að sem flest geti nýtt sér þau til að efla sig í starfi.

Félagsfólk getur skráð sig á eitt námskeið sem kemur ekki til frádráttar á styrkupphæð einstaklinga. Kjósi einstaklingar að skrá sig á fleiri en eitt námskeið eru þau sem fyrr styrkhæf hjá Starfsþróunarsetrinu.

Upplýsingar um afsláttarkóða sem nota skal við skráningu sækir þú inn á „Mínar síður“ á vef BHM.

Afsláttarkóðinn gildir aðeins á þau námskeið sem birt eru hér fyrir neðan. Ef afsláttarkóðinn er notaður á fleiri en eitt námskeið er veittur sjálfkrafa styrkur fyrir þeim námskeiðum sem kemur til frádráttar á inneign viðkomandi hjá Starfsþróunarsetrinu.

Öðrum en félagsfólki með virka aðild að Starfsþróunarsetri BHM er með öllu óheimilt að nota afsláttarkóðann. Ef afsláttarkóðinn er notaður af einstaklingi sem ekki hefur aðild að Starfsþróunarsetrinu verður námskeiðsgjald innheimt með greiðsluseðli á viðkomandi einstakling.

Ert þú ekki viss um aðild þína?
Hér eru upplýsingar um aðild einstaklinga hjá Starfsþróunarsetrinu.

Athugið að nýjum námskeiðstímum er reglulega bætt við, svo endilega fylgist vel með þessari síðu.

Hagnýtar gervigreindarlausnir
- Staðnámskeið 4. & 5. febrúar (13:00 - 16:30)
- Staðnámskeið 11. & 12. febrúar (13:00 - 16:30) ) *FULLBÓKAÐ* (Biðlistaskráning í tölvupósti)
- Staðnámskeið 16. & 17. febrúar (13:00 - 16:30)
- Staðnámskeið 10. & 11. mars (13:00 - 16:30)
- Staðnámskeið 13. mars (8:30 - 16:30)

Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin
- Fjarnámskeið 4. febrúar (8:30 - 12:30) *FULLBÓKAÐ* (Biðlistaskráning í tölvupósti)
- Fjarnámskeið 17. febrúar (8:30 - 12:30)
- Staðnámskeið 12. mars (12:30 - 16:30)

Hagnýtar gervigreindarlausnir - framhaldsnámskeið
- Staðnámskeið 5. febrúar (8:30 - 12:00)
- Staðnámskeið 10. febrúar (13:00 - 16:30)

Hámörkum árangur með gervigreind - greining og ákvarðanir
- Staðnámskeið 12. & 13. febrúar (8:30 - 12:30)
- Staðnámskeið 2. & 3. mars (8:30 - 12:30)

Lykilatriði breytingastjórnunar - grunnur
- Staðnámskeið 20. febrúar (9:00 - 12:00)

Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun
- Fjarnámskeið 25. & 27. febrúar (8:30 - 12:30)
- Staðnámskeið 24. & 26. mars (12:30 - 16:30)

Að huga að öðrum án þess að tapa sjálfum sér
- Staðnámskeið 3. - 10. mars (17:00 - 19:30)

Excel - Pivot
- Staðnámskeið 9. & 10. mars (8:30 - 12:30)
- Staðnámskeið 29. & 30. aprí (8:30 - 12:30)

Árangursríkari starfsmannasamtöl
- Staðnámskeið 18. mars (8:30 - 12:00)
- Fjarnámskeið 19. mars (8:30 - 12:30)
- Fjarnámskeið 24. mars (8:30 - 12:00)

Stjórnun fyrir nýja stjórnendur
- Staðnámskeið 18. & 19. mars (13:00 - 16:30)

Persónuverndarlög (GDPR)
- Staðnámskeið 16. & 17. apríl (8:30 - 12:30)

SKRÁNING

Nýr notandi þarf setja inn netfang, smella á Halda áfram og búa sér svo til lykilorð.
Notandi sem þegar er til í kerfinu smellir á Fara í innskráningu.

Athugið að við skráningu þarf þátttakandi að setja sína eigin kennitölu í reitinn Kennitala greiðanda.  Upplýsingar um afsláttarkóða, sem nota skal við skráningu, sækir þú inn á "Mínar síður" á vef BHM. Afsláttarkóðinn veitir 100% afslátt af námskeiðsgjaldi og er settur inn í síðasta skrefi skráningarferlisins (Greiðsla og staðfesting).

Setja á afsláttarkóðann í reitinn Afsláttarkóði.

Staðfesting á skráningu berst með tölvupósti til þátttakenda.

AFSKRÁNING

Afskráning skal berast til Endurmenntunar í tölvupósti.

BREYTING Á NÁMSKEIÐI
Endurmenntun HÍ áskilur sér rétt til að fella niður eða fresta námskeiðum ef óviðráðanlegar aðstæður koma upp.