Facebook Pixel

Upplýsingar fyrir kennara Endurmenntunar HÍ

Efnis mynd

Við upphaf námskeiðs er gott fyrir kennara að mæta tímanlega í hús til þess að skrá sig inn í tölvukerfið, fá viðverulista og aðrar hagnýtar upplýsingar áður en kennsla hefst. 

Endurmenntun Háskóla Íslands veitir kennurum sínum 20% afslátt af námskeiðum sem haldin eru á því misseri sem þeir eru að kenna. Notið eftirfarandi afsláttakóða til að virkja afsláttinn, við skráningu.

Afsláttakóði: KENNSLAH25

Gerð og skil á námskeiðsgögnum

Námsgögn í öllum námskeiðum Endurmenntunar HÍ eru á rafrænu formi í samræmi við umhverfisstefnu Endurmenntunar HÍ og haga þarf þeim þannig að efnið megi vista á pdf-formi og senda þátttakendum rafrænan aðgang að þeim. Umsjónarmaður námsgagna veitir einnig upplýsingar í síma 525 4444.

Námsgögnin þarf að senda til okkar í síðasta lagi 5 dögum fyrir upphafsdag námskeiðs á netfangið namsgogn@endurmenntun.is.

Þátttakendur fá senda slóð á vefsíðu daginn áður en námskeið hefst, þar sem þeir geta nálgast námskeiðsgögnin. Aðgangur að gögnunum er virkur í 10 daga eftir að námskeiði lýkur. Við getum bætt efni inn á vefsíðuna eftir að námskeið hefst, sé þess óskað. 

Hér eru nánari upplýsingar um rafrænu námsgögnin og framsetningu þeirra.

Æskilegt er að þau námsgögn sem send eru þátttakendum, sem og glærukynning kennara, séu í stöðluðu power point- og wordsniði merkt EHÍ.

PowerPoint sniðmát

Word snið - portrait

Leiðbeiningar

Af öryggisástæðum höfum við hjá Endurmenntun tekið ákvörðun um að hætta að taka við USB lyklum með námsgögnum.
Ástæðan er sú að hjá okkur kenna 150 - 200 mismunandi kennarar á ári og ef allir koma með USB lykla eykur það líkur á vírusum og/eða öðrum tölvutengdum vandamálum. Við biðjum því um að kennarar taki tillit til þessa og sendi okkur námsgögnin með tölvupósti á netföngin hér fyrir ofan. Námsgagnastjóri sér um að setja gögnin á skjáborðið í kennslustofunni sem kennslan fer fram.

Vinsamlegast hafðu eftirfarandi í huga við gerð námsgagna:

  • Merktu slæður og annað efni með © og nafni þínu svo ljóst sé að efnið er höfundarréttarvarið og hver höfundur þess er.
  • Við fjölföldum á pappír það efni sem þú telur að henti alls ekki á rafrænu formi, s.s. landakort eða annað sem þátttakendur þurfa að geta skráð inn á eða verkefni sem þátttakendur eiga að vinna í tímanum.
  • Þú þarft ekki að veita þátttakendum aðgang að öllu því efni sem þú notar við kennsluna. Þú getur t.d. verið með ljósmyndir eða texta í kennsluslæðum sem eru ekki hluti af því efni sem þátttakendur fá aðgang að.
  • Ef þú vilt styðja námsefnið með myndum eða myndskeiðum en átt þess ekki kost að nota eigið efni, biðjum við þig um að huga að höfundarréttarlögum og nota aðeins efni sem er höfundarréttarlaust eða efni sem höfundarrétthafar hafa heimilað not á.

Afrita hlekk!

Aðbúnaður - Kennslutæki & hljóðnemar

Kennslutæki 

Hjá Endurmenntun HÍ eru flest almenn kennslutæki og búnaður til staðar. Í kennslustofum er skjávarpi, tússtafla og tölva. Ef óskað er eftir öðrum búnaði þá vinsamlegast látið vita með a.m.k. viku fyrirvara. Einnig látið vita ef ætlunin er að nota önnur tölvuforrit en Word, Excel og PowerPoint, eða ef spila á myndband eða nota Youtube við kennsluna. Ef kennarar kjósa að nota eigin fartölvu (t.d. Apple) er nauðsynlegt að þeir komi með viðeigandi tengisnúru.

Hljóðnemar fyrir kennara

Æskilegt er að kennarar noti hljóðnema við kennslu.
Þetta er gert til að auka ánægju viðskiptavina, þ.e. að allir heyri skýrt og vel í kennaranum og upplifi sömu hljóðgæði í öllum kennslustofunum óháð því hvar setið er.
Auk þess er þetta til mikilla bóta fyrir kennarana sjálfa þar sem minna reynir á röddina og þeir þreytast þá síður.
Hljóðnemarnir eru aðgengilegir og þægilegir í notkun og starfsfólk okkar er kennurum ávallt innan handar varðandi tæknimál.

Afrita hlekk!

Á meðan námskeiði stendur

Aðstoð með tæki

Vinsamlegast fáið aðstoð frá starfsfólki í þjónustu ef upp koma vandkvæði með tækjabúnað. Starfsfólk þjónustudeildar sér um að kveikja á tækjum og ganga frá þeim að loknu námskeiði.

Viðverulisti

Vinsamlegast merkið við mætingu þátttakenda og skilið viðverulistanum til þjónustudeildar í lok hvers námskeiðsdags.

Skírteini

Endurmenntun HÍ sendir út rafræn skírteini á "mínar síður" þátttakenda eftir að námskeiði lýkur.

Starfsfólk þjónustudeildar sér um að aðstoða kennara við að skrá sig inn í tölvuna í kennslustofunni og setja upp námsgögnin.

Hressing

Kaffi- og vatnsvélar eru staðsettar á báðum hæðum hússins.
Í kaffihlé býðst þátttakendum að þiggja kaffi/te sem staðsett er í vélum á gangi hverrar hæðar. Kennari gerir hlé eftir þörfum hverju sinni.

Afrita hlekk!

Fjarnámskeið

Ef námskeiðið er fjarnámskeið og kennt í gegnum ZOOM að þá gerum við ráð fyrir því að kennslan fari fram í kennslustofum okkar að Dunhaga 7. Ef það hentar ekki af einhverjum ástæðum, þá er mikilvægt að hafa samband við verkefnisstjóra námskeiðsins. Aðeins verkefnisstjóri getur gefið leyfi fyrir því að kennslan fari fram annarsstaðar.  Athugaðu að það er ætlast til þess að kennarar noti tölvurnar sem eru í kennslustofum og einnig biðjum við kennara að láta þjónustudeildina vita ef það eru einhverjar óskir varðandi tæknimál á netfangið endurmenntun@hi.is eða í síma 525 4444.

GÓÐ RÁÐ FYRIR KENNSLU Í GEGNUM ZOOM

Afrita hlekk!

Laun og reikningar

Launagreiðslur

Eftir að námskeiði lýkur skal kennari senda rafrænan reikning gefinn út á Háskóla Íslands og merkja í deild viðfangsnúmer (sjá töflu). Nánari upplýsingar um upphæð á þóknun er í tölvupóstinum sem kennari fær þegar staðfest er að námskeiðið verður haldið.

Reikningurinn á að vera rafrænn og samkvæmt reglum frá Ríkisendurskoðunán vsk. Á honum þarf að koma fram kennitala kennarans eða þess fyrirtækis sem innheimtir og reikningsnúmer sem leggja skal inn á. Gæta þarf þess að kennitala eigi við reikningsnúmer.
Að jafnaði eru reikningar greiddir 21 degi eftir að þeir berast til Endurmenntunar HÍ.

Hér fyllir þú út rafrænan reikning.

Reikningurinn á að vera númeraður og gefin út á:

Háskóla Íslands (6001692039)
Dunhaga 7
107 Reykjavík
Deild: 20437xxx (sjá töflu)
Lýsing: Númer og heiti námskeiðs/námsbrautar

Tafla með viðfangsnúmerum:

  • 20437005 Námskeið
  • 20437300 Lengra nám, almennt

Afrita hlekk!

Leiðbeiningar um reikningagerð Skúffan

Kennari skal senda rafrænan reikning í gegnum Skúffuna á vegum Fjársýslunnar, á vefsíðunni https://skuffan.is/gattir/fjs. Þær upplýsingar sem er nauðsynlegt að komi fram á reikningi frá kennara á námskeiði eru eftirfarandi:

1. - Skilyrtar upplýsingar seljanda eru:
a. Kennitala,
b. Nafn,
c. Netfang,
d. Reikningsnúmer

2. - Kaupandi: Háskóli Íslands (valið í flettihnappi).

3. - Deild: Viðfangsnúmer Endurmenntunar HÍ fyrir styttra nám: 20437005.

4. - Ekki er nauðsynlegt að fylla út “Nafn tengiliðs” en gott væri að setja þar nafn verkefnastjóra.

5. - Í lýsingu þarf að koma fram námskeiðsnúmer (xxxH24) og námskeiðsheiti.

6. - Aðrar upplýsingar kaupanda sem eru skilyrtar eru:
a. Gjalddagi,
b. Útgáfudagur reiknings,
c. Greiðsluupplýsingar,
d. Heiti vöru/námskeiðs, magn og einingaverð

Athugið að reikningsfjárhæð skal vera án virðisaukaskatts, þar sem Háskóli Íslands er undanþeginn virðisaukaskatti.

Hengja skal bókhaldsreikning við sem viðhengi.

Hægt er að smella á Forskoða reikning / Villuprófun (neðst á síðunni) til að sjá hvernig reikningurinn lítur út. Ef einhverjar upplýsingar vantar inn þá kemur reikningurinn ekki upp á skjáinn heldur litast þeir reitir rauðir sem enn á eftir að fylla út.

Þegar reikningur er í lagi þá skal smella á Senda-hnappinn, neðst í hægra horni.

Afrita hlekk!

Námskeiðsmat

Stutt könnun er send rafrænt á netfang þátttakenda eftir að námskeiði lýkur. Könnunin er nafnlaus. Gott er að kennari hvetji þátttakendur við lok námskeiðs að taka könnunina.

Niðurstaða úr mati er sent til kennara á rafrænu formi um leið og úrvinnslu lýkur.

Afrita hlekk!