Staðnámskeið

Byrjaðu í golfi

- fyrir byrjendur og lengra komna
Verð 38.400 kr.

Fullbókað - Biðlisti í síma 525 4444
Í gangi

Mán. 27. nóv., mið. 29. nóv. og fim. 30. nóv. kl. 20:00 - 22:00. Kennt er 29. nóv. í æfingahúsnæði.

6 klst.

Magnús Birgisson, PGA golfkennari og SNAG master leiðbeinandi

Endurmenntun, Dunhaga 7 og í æfingahúsnæði.

Námskeið

Námskeiðið er endurtekið á misserinu vegna mikillar eftirspurnar.

Í samstarfi við
Hissa, ráðgjafar- og fræðslumiðstöð um golf.

Nú er hægt að byrja í golfi í ENDURMENNTUN HÍ. Á þessu sívinsæla námskeiði eru grunnatriðin í golfi kennd með Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegið í gegn út um allan heim. Kennslan fer fram í formi fyrirlestra, æfinga og leikja.

Golf er vinsæl íþrótt meðal allra aldurshópa og það er hægt að byrja að spila golf hvenær sem er á lífsleiðinni. Á námskeiðinu verður farið í alla þá grunnþætti sem nauðsynlegir eru fyrir fyrstu skrefin á golfvellinum.

Á námskeiðinu er fjallað um

Grunnhreyfingar í golfsveiflunni.
Öll meginhögg í golfi.
Siði og grunnreglur í golfleiknum.
Venjur og hugarfar við golfiðkun.

Ávinningur þinn

Kynnast golfleiknum á auðveldan og skemmtilegan hátt.
Læra og æfa grunnhreyfingar í golfi við þægilegar aðstæður.
Kynnast margverðlaunuðu kennslukerfi- og búnaði SNAG.
Öðlast skilning á helstu siðum, venjum og grunnreglum golfsins.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla sem hafa áhuga á að læra grunnhreyfingar og kynnast siðum og venjum í golfi við þægilegar aðstæður og fyrir þá sem vilja kynna sér sérstaklega SNAG kerfið. Eftir námskeiðið eru þátttakendur betur undirbúnir undir áframhaldandi golfkennslu hjá golfkennurum og t.d. til að taka þátt í skemmtigolfmótum.

Nánar um kennara

Magnús Birgisson PGA golfkennari og SNAG master leiðbeinandi. Magnús hefur kennt þúsundum íslendinga golf í einstaklingskennslu og í golfskólum á Íslandi og á Spáni um árabil. Magnús vinnur nú að fjölgun kylfinga með SNAG golf kennslukerfinu.

Aðrar upplýsingar

Kennt er í húsnæði ENDURMENNTUNAR HÍ og á æfingasvæði innanhúss.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Byrjaðu í golfi

Verð
38400

<span class="fm-plan">N&uacute; er h&aelig;gt a&eth; byrja &iacute; golfi &iacute; ENDURMENNTUN H&Iacute;. &Aacute; &thorn;essu s&iacute;vins&aelig;la n&aacute;mskei&eth;i eru grunnatri&eth;in &iacute; golfi kennd me&eth; Starting New At Golf (SNAG) golfkennslukerfinu sem hefur slegi&eth; &iacute; gegn &uacute;t um allan heim. Kennslan fer fram &iacute; formi fyrirlestra, &aelig;finga og leikja.</span>