Staðnámskeið

Húmor og aðrir styrkleikar

Verð 43.900 kr.
Aðeins 3 sæti laus

Ekki missa af spennandi námskeiðum! Skráðu þig á póstlista Endurmenntunar HÍ!

Mán. 6. og þri. 7. maí kl. 17:00 - 19:30

6 klst.

Edda Björgvinsdóttir, leikkona, MA í menningarstjórnun og diplóma í jákvæðri sálfræði

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Rannsóknir sýna að þeir einstaklingar sem fá tækifæri á að nýta styrkleika sína í leik og starfi á hverjum degi, tengjast tilfinningum sínum betur og eru virkari og orkumeiri í vinnunni. Hamingjan eykst og árangur batnar. Einstaklingar sem vinna með styrkleika sína upplifa mun betri  lífsgæði almennt. Húmor er einn af fjölmörgum styrkleikum manneskjunnar og er óumdeilanlega afar mikilvægur þáttur í þroskaferli hvers og eins og vegur að auki þungt þegar kemur að því að draga úr streitu og hjálpa manneskjunni að blómstra.

Styrkleikar okkar drífa okkur áfram og eru manneskjunni jafn eðlilegir og það að draga andann. Staðreyndin er samt sú að aðeins einn þriðji einstaklinga hefur góðan skilning á því hverjir styrkleikar þeirra eru og að allir hafi tilhneigingu til að vera að einhverju leyti blindir á eigin styrkleika. Það sem við græðum á því að þekkja og nota styrkleika okkar er að við öðlumst betri sjálfsvitund og þekkingu á því hvað fyllir okkur eldmóði og orku og vellíðan okkar og hamingja eykst.

Húmor í öllum sínum fjölbreytileika er viðfangsefnið á þessu námskeiði.

Á námskeiðinu er fjallað um

Hverjir eru styrkleikar mínir.
Hverjir eru styrkleikar annarra.
Hvernig er ég að nýta styrkleika mína.
Hvernig get ég nýtt styrkleika mína betur.
Styrkleikann húmor sem er afar gleðiaukandi og nauðsynlegt er að skoða allar hliðar á húmor.
Húmor er sá styrkleiki sem dregur hvað mest úr streitu.

Ávinningur þinn

Færni í að koma auga á eigin styrkleika og annarra.
Aukin sjálfsþekking og vellíðan.
Ótal tæki og tól til að bæta samstarf, auka sveigjanleika, gleði og afköst, ekki síst húmor sem er einstaklega gott samskiptatæki.

Fyrir hverja

Styrkleikavinna er öllum mikilvæg. Styrkleikaþjálfun ætti að fara fram heima til að styrkja fjölskylduböndin. Á vinnustöðum er einstaklega áhrifaríkt að vinna með styrkleika til að bæta starfsanda.

Nánar um kennara

Edda Björgvinsdóttir lauk leiklistarnámi frá Leiklistarskóla Íslands og meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur einnig lokið diplómu á meistarastigi í jákvæðri sálfræði frá ENDURMENNTUN HÍ. Edda hefur víðtæka reynslu af námskeiðs- og fyrirlestrarhaldi af ýmsum toga.

Aðrar upplýsingar

Á námskeiðinu eru íslensku Styrkleikakortin notuð. Þau eru afar öflugt tæki til að hjálpa okkur að greina og nýta styrkleika okkar.
Styrkleikakortin eru innifalin í námskeiðsgjaldi.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Húmor og aðrir styrkleikar

Verð
43900

<span class="fm-plan">Ranns&oacute;knir s&yacute;na a&eth; &thorn;eir einstaklingar sem f&aacute; t&aelig;kif&aelig;ri &aacute; a&eth; n&yacute;ta styrkleika s&iacute;na &iacute; leik og starfi &aacute; hverjum degi, tengjast tilfinningum s&iacute;num betur og eru virkari og orkumeiri &iacute; vinnunni. Hamingjan eykst og &aacute;rangur batnar. Einstaklingar sem vinna me&eth; styrkleika s&iacute;na upplifa mun betri&nbsp; l&iacute;fsg&aelig;&eth;i almennt. H&uacute;mor er einn af fj&ouml;lm&ouml;rgum styrkleikum manneskjunnar og er &oacute;umdeilanlega afar mikilv&aelig;gur &thorn;&aacute;ttur &iacute; &thorn;roskaferli hvers og eins og vegur a&eth; auki &thorn;ungt &thorn;egar kemur a&eth; &thorn;v&iacute; a&eth; draga &uacute;r streitu og hj&aacute;lpa manneskjunni a&eth; bl&oacute;mstra.</span>