Staðnámskeið

Heilaheilsa og þjálfun hugans

Verð 43.900 kr.
Í gangi

Mán. 9. og 16. okt. kl. 17:15 - 20:45

7 klst.

Ólína G. Viðarsdóttir, sálfræðingur og doktor í líf- og læknavísindum við HÍ

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Á námskeiðinu er fjallað um heilann og hugarstarf. Markmið námskeiðsins er að þátttakendur öðlist þekkingu á hugrænum þáttum og hvaða hlutverki þeir gegna í okkar daglega lífi. Einnig að þeir öðlist betri innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika og læri leiðir til að þjálfa hugann og efla heilaheilsu.

Hugræn geta á við um starfsemi heilans sem gerir okkur kleift að vera virk í daglegu lífi; heima, í vinnu og í samskiptum. Áhersla á heilaheilsu hefur verið að aukast síðustu áratugina og rannsóknir hafa sýnt fram á gagnsemi ýmissa leiða til að þjálfa heilann og viðhalda góðri heilaheilsu út lífið. Hugræn þjálfun hefur verið rannsökuð víða og er nú í boði sem meðferð fyrir ýmsa hópa.

Á námskeiðinu er fjallað um

Heilaheilsu og hugræna þætti, s.s. einbeitingu, athygli, minni og stýrifærni, og áhrif þeirra á daglegt líf.
Leiðir til að bæta heilbrigði heilans og lifa heilaheilsuvænu lífi.
Hugræna þjálfun.
Hvernig á að útbúa þjálfunaráætlun til að bæta hugræna getu og meta árangurinn.

Ávinningur þinn

Að auka skilning á hugarstarfi.
Að auka innsýn í eigin hugrænu styrkleika og veikleika.
Að læra fjölbreyttar leiðir til að bæta hugarstarf og heilaheilsu.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað öllum sem vilja fræðast um heilaheilsu og leiðir til að þjálfa hugræna þætti á markvissan hátt.

Nánar um kennara

Ólína G. Viðarsdóttir er með BA-próf og kandídatspróf í sálfræði auk þess að hafa lokið doktorsprófi í líf- og læknavísindum. Í doktorsnámi sínu rannsakaði Ólína hugræna getu og áhrif hugrænnar endurhæfingar á hugræna getu, líðan og færni í daglegu lífi. Ólína er eigandi Heilaheilsu ehf. og starfar einnig sem verkefnastjóri í geðþjónustu Landspítala. Auk þess sinnir Ólína gestakennslu við Háskóla Íslands.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Heilaheilsa og þjálfun hugans

Verð
43900

<span class="fm-plan">&Aacute; n&aacute;mskei&eth;inu er fjalla&eth; um heilann og hugarstarf. Markmi&eth; n&aacute;mskei&eth;sins er a&eth; &thorn;&aacute;tttakendur &ouml;&eth;list &thorn;ekkingu &aacute; hugr&aelig;num &thorn;&aacute;ttum og hva&eth;a hlutverki &thorn;eir gegna &iacute; okkar daglega l&iacute;fi. Einnig a&eth; &thorn;eir &ouml;&eth;list betri inns&yacute;n &iacute; eigin hugr&aelig;nu styrkleika og veikleika og l&aelig;ri lei&eth;ir til a&eth; &thorn;j&aacute;lfa hugann og efla heilaheilsu.</span>