Valmynd
Þri. og fim. 30. ágúst - 6. okt. kl. 16:40 - 18:10 (12x)
Kennari: Ásta Ingibjartsdóttir
Umsjón: Eyjólfur Már Sigurðsson
Háskóli Íslands, Veröld - Hús Vigdísar.
Upplýsingar um kennslustofu verður birt um leið og hún liggur fyrir.
Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ
Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í frönsku máli á skömmum tíma. Engrar forkunnáttu er krafist.
Athugið að námskeiðið gildir ekki til eininga í BA-námi í frönsku.
Lögð er jöfn áhersla á lestur, hlustun, ritun og talfærni. Farið verður yfir öll helstu grunnhugtök í franskri málfræði og nemendur fá tækifæri til að þjálfa sig í Tungumálamiðstöð Háskóla Íslands.
Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn á þriðjudögum og fimmtudögum á tímabilinu 30. ágúst til 6. október kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.
Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs hafa nemendur:
- Náð tökum á helsta orðaforða daglegs lífs og geti tjáð sig um sjálfa sig, fjölskyldu sína, áhugamál, starf, o.s.frv.
- Náð tökum á undirstöðuatriðum franskrar málfræði.
- Náð tökum á framburði.
Nemendur geta:
- Lesið einfalda texta af ýmsum toga á frönsku.
- Skilið einfalt hlustunarefni á frönsku.
- Ritað einfaldan texta á frönsku.
Námskeiðið er kennt í samstarfi við ENDURMENNTUN HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.
Sjá kennsluskrá hér.
Þátttakendum er bent á að hægt er að kaupa kennslubækur námskeiðsins hjá Bóksölu stúdenta, Défi 1, Cahier d’exercices, Difusion 2016 og Défi 1, Livre de l’eleve, sjá hér.
Vinsamlegast athugið að þetta námskeið er einungis ætlað algerum byrjendum í frönsku. Þeim nemendum sem hafa einhvern grunn í frönsku er bent á framhaldsnámskeiðin Franska fyrir byrjendur II – IV.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í frönsku máli á skömmum tíma. Engrar forkunnáttu er krafist.</span>