Staðnámskeið

Þýska fyrir byrjendur III

Skráning til og með 8. janúar Verð 75.000 kr.
Aðeins 1 sæti laust

Þri. og fim. 8. jan. - 15. feb. kl. 16:40 - 18:10 (12x)

18 klst.

Upplýsingar um kennara koma síðar.
Umsjón: Eyjólfur Már Sigurðsson

Háskóli Íslands, Veröld - Hús Vigdísar.
Upplýsingar um kennslustofu verða birtar um leið og þær liggja fyrir.

Námskeið

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ

Þetta námskeið er fyrir alla þá er hafa lokið Þýska fyrir byrjendur I og Þýska fyrir byrjendur II eða hafa sambærilega þekkingu á þýsku máli.

Unnið verður með alla færniþætti (talmál, lestur, hlustun og ritun) en þó verður sérstök áhersla á talmál.

Námskeiðið er kennt í 6 vikur, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn frá 8. janúar til 15. febrúar, á þriðjudögum og fimmtudögum kl. 16:40 – 18:10 í Veröld – Húsi Vigdísar.

Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs geta nemendur:
- tjáð sig í ræðu og riti um kunnugleg málefni svo sem: uppruna, fjölskyldu, nám og vinnu, smekk, og lýsingar á hlutum og fólki.
- skilið samræður á þýsku um kunnugleg málefni (sbr. hér að ofan).

Nemendur munu einnig öðlast betri innsýn í menningu og þjóðfélög þýskumælandi landa.

Námskeiðið er kennt á ensku og þýsku.

Námskeiðið er kennt í samstarfi við ENDURMENNTUN HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.

Sjá kennsluskrá hér.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendum er bent á að hægt er að kaupa vinnubækur námskeiðsins hjá Bóksölu stúdenta, Momente A1 Kursbuch og Momente A1 Arbeitsbuch sjá hér.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Þýska fyrir byrjendur III

Verð
75000

<span class="fm-plan">&THORN;etta n&aacute;mskei&eth; er fyrir alla &thorn;&aacute; er hafa loki&eth; &THORN;&yacute;ska fyrir byrjendur I og &THORN;&yacute;ska fyrir byrjendur II e&eth;a hafa samb&aelig;rilega &thorn;ekkingu &aacute; &thorn;&yacute;sku m&aacute;li.</span>