

Valmynd
Þri. og fim. 9. - 30. apríl kl. 17:00 - 19:55 (7x)
Guðmundur Björnsson, ferðamálafræðingur og leiðsögumaður.
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum undirstöðuþekkingu á ferðamannalandinu Íslandi og helstu áfangastöðum og ferðaleiðum sem þar er að finna. Jafnframt er leitast við að veita þátttakendum hagnýta þjálfun til að þeir geti skipulagt ferðir um landið. Ferðaleiðir skoðaðar með tilliti til aðdráttarafls þeirra, afþreyingamöguleika og upplifunar ferðamanna. Farið í sýndarferðalög víðs vegar um landið og dregið saman það helsta um hverja leið með tilliti til samfélags þess svæðis sem ferðast er um, náttúru, sögu og menningu.
Sérstök áhersla verður lögð á þjálfun í að afla gagna til að skipuleggja ferðir um Ísland fyrir ólíka hópa ferðamanna, miðlun upplýsinga til ferðamanna og pistlagerð.
Ferðaleiðir í öllum landshlutum.
Að loknu námskeiði er gert ráð fyrir að þátttakendur geti:
Aflað gagna til að skipuleggja ferðir um Ísland fyrir ólíka hópa ferðamanna.
Aflað upplýsinga um mismunandi afþreyingarmöguleika hvers landssvæðis og sérkenni þess m.t.t. sögu, náttúru og samfélags.
Miðlað upplýsingum sem við eiga til ferðamanna á skilmerkilegan hátt.
Hannað á heildstæðan hátt pakkaferð um Ísland, þar sem notast er við kort og aðra myndræna framsetningu eins og við á.
Þátttakendur hafa val um að þreyta námsmat sem byggir á stuttum könnunum, pistlum og verkefnum. ATH. að námsmat getur teygt sig fram yfir lokadagsetningu námskeiðs. Með því að ljúka námsmati hefur þátttakandi möguleika á að fá námskeiðið metið inn í leiðsögunámi Endurmenntunar.
Námskeiðið er bæði hægt að sækja í staðnámi og fjarnámi. Fyrirlestrar eru teknir upp og nemendur geta hlustað á upptökur þegar þeim hentar.
Fyrir alla áhugasama um ferðaþjónustu og leiðsögn. Námskeiðið er tilvalið til endurmenntunar leiðsögumanna.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Markmið námskeiðsins er að veita þátttakendum undirstöðuþekkingu á ferðamannalandinu Íslandi og helstu áfangastöðum og ferðaleiðum sem þar er að finna. Jafnframt er leitast við að veita þátttakendum hagnýta þjálfun til að þeir geti skipulagt ferðir um landið. Ferðaleiðir skoðaðar með tilliti til aðdráttarafls þeirra, afþreyingamöguleika og upplifunar ferðamanna. Farið í sýndarferðalög víðs vegar um landið og dregið saman það helsta um hverja leið með tilliti til samfélags þess svæðis sem ferðast er um, náttúru, sögu og menningu.</span>