Valmynd
Fim. og þri. 2. - 23. feb. kl. 17:00 - 19:55 (7x)
Snæbjörn Guðmundsson, jarðfræðingur
Endurmenntun, Dunhaga 7
Farið verður yfir þau ferli sem hafa myndað og mótað Ísland í tímans rás út frá sjónarhóli innrænna og útrænna afla. Jafnframt verður veðurfarssaga Íslands tekin fyrir sem og áhrif loftslagsbreytinga á myndunarsögu landsins. Einnig verður veitt innsýn í íslenskar náttúruauðlindir og nýtingu þeirra (til dæmis jarðhita og vatnsaflsvirkjanir). Sérstök áhersla verður lögð á sérkenni íslenskrar náttúru, þar á meðal afleiðingar einangrunar og þá umhverfisþætti sem áhrif hafa haft á mótun íslensks landslags og náttúrufars. Jafnframt verður lögð mikil áhersla á jarðfræðilæsi nemenda með tengingu námsefnis við raunveruleg dæmi og verkefni á vettvangi í nágrenni Reykjavíkur.
Uppruna Íslands - flekakenninguna og möttulstrókinn.
Berggrunn - berg og steindir.
Jarðgrunn - set, skriðuföll, ísaldaminjar og námur.
Vatn og ár - stöðuvötn, jökla og jarðhita.
Eldvirkni - eldstöðvakerfi og gossögu.
Jarðskjálfta - náttúruvá.
Landshlutajarðfræði.
Þekkir skil á helstu lykilatriðum í jarðfræði og náttúru Íslands.
Þekkir þróun á myndun og mótun Íslands og geti sett Ísland í alþjóðlegt jarðsögulegt samhengi. Skiljir samspil ráðandi ferla í myndun og mótun lands.
Lærir að tengja saman mismunandi umhverfisaðstæður og setja þær í landmótunarlegt samhengi.
Lærir að setja saman náttúruvænar ferðalýsingar.
Þátttakendur hafa val um að þreyta námsmat sem byggir á stuttum könnunum, pistlum og verkefnum. Með því að ljúka námsmati hefur þátttakandi möguleika á að fá námskeiðið metið inn í leiðsögunámi Endurmenntunar.
Námskeiðið er bæði hægt að sækja í staðnámi og fjarnámi. Fyrirlestrar eru teknir upp og nemendur geta hlustað á upptökur þegar þeim hentar.
Fyrir alla áhugasama um jarðfræði Íslands. Námskeiðið er tilvalið til endurmenntunar leiðsögumanna.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Farið verður yfir þau ferli sem hafa myndað og mótað Ísland í tímans rás út frá sjónarhóli innrænna og útrænna afla. Jafnframt verður veðurfarssaga Íslands tekin fyrir sem og áhrif loftslagsbreytinga á myndunarsögu landsins. Einnig verður veitt innsýn í íslenskar náttúruauðlindir og nýtingu þeirra (til dæmis jarðhita og vatnsaflsvirkjanir). Sérstök áhersla verður lögð á sérkenni íslenskrar náttúru, þar á meðal afleiðingar einangrunar og þá umhverfisþætti sem áhrif hafa haft á mótun íslensks landslags og náttúrufars. Jafnframt verður lögð mikil áhersla á jarðfræðilæsi nemenda með tengingu námsefnis við raunveruleg dæmi og verkefni á vettvangi í nágrenni Reykjavíkur. </span>