Valmynd
Þri. 26. og fim 28. sept. kl. 14:00 - 15:30
Erla Bryndís Kristjánsdóttir, landslagsarkitekt og skipulagsráðgjafi hjá Verkís og Gunnar Páll Eydal, umhverfis- og auðlindafræðingur og umhverfis- og skipulagsráðgjafi hjá Verkís.
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.
Skipulagsmál eru spennandi og mikilvæg en um leið krefjandi og jafnvel flókin. Í skipulagi er sett stefna um fyrirkomulag byggðar og mótun umhverfis og þar er landi ráðstafað fyrir mismunandi nýtingu. Teknar eru ákvarðanir og ákvæði sett um hönnun hins byggða umhverfis. Sveitarfélögum ber skylda til að taka faglegar og gagnsæjar skipulagsákvarðanir með aðkomu íbúa og hagaðila.
Á námskeiðinu verður farið yfir tilgang og markmið skipulagsgerðar, helstu hugtök í skipulagi, mismunandi gerðir skipulags og skipulagsferlið. Fjallað verður um áhrif skipulags á umhverfi og samfélag og aðkomu íbúa og annarra aðila að skipulagsgerðinni. Jafnframt er fjallað um ýmis tæki og tól sem notuð eru við skipulagsgerð.
Markmið námskeiðsins er að auka þekkingu þátttakenda á skipulagsmálum. Námskeiðinu er ætlað að veita ákveðna yfirsýn um skipulagsmál, auka skipulagslæsi og færni til þátttöku í skipulagsgerð. Tekin verða dæmi til útskýringar og stuðnings á viðfangsefninu.
Tilgang og gildi skipulags.
Helstu hugtök í skipulagi og við skipulagsgerð.
Mismunandi gerðir skipulags og tengsl þeirra.
Skipulagsferlið og afgreiðslu skipulags.
Áhrif skipulags á umhverfi og samfélag.
Aðkomu íbúa og hagsmunaaðila.
Tól og verkfæri við skipulagsgerð.
Hvernig á að lesa skipulag.
Yfirsýn yfir skipulagsgerðir, skipulagsferlið og hugtök á þessu sviði.
Aukið skipulagslæsi.
Aukin færni og kunnátta til þátttöku í gerð skipulags.
Námskeiðið er ætlað fyrir sveitarstjórnarfólk og aðra kjörna fulltrúa í nefndum sveitarfélaga, t.d. skipulagsnefndir, byggingarnefndir, hafnarstjórnir, umhverfisnefndir og atvinnunefndir.
Einnig fyrir starfsfólk sveitarfélaga og aðra opinbera starfsmenn sem tengjast skipulagsmálum. Gagnlegt fyrir aðila sem tengjast framkvæmdum sem kalla á skipulagsvinnu. Hentar einnig íbúum sem láta sig skipulagsmál varða.
Erla Bryndís Kristjánsdóttir starfar við skipulagsráðgjöf hjá verkfræðistofunni Verkís og er hópstjóri landslags og skipulags hjá fyrirtækinu. Hún er landslagsarkitekt frá Landbúnaðarháskóla Noregs (1998) og hefur starfað við landslagshönnun og skipulagsráðgjöf frá þeim tíma.
Gunnar Páll Eydal starfar við umhverfis- og skipulagsráðgjöf hjá verkfræðistofunni Verkís og er með meistaragráðu í umhverfis- og auðlindastjórnun frá Simon Fraser University í Kanada (2005). Gunnar Páll hefur starfað við rannsóknir, ráðgjöf og kennslu í umhverfis- og skipulagsmálum frá árinu 1997.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Skipulagsmál eru spennandi og mikilvæg en um leið krefjandi og jafnvel flókin. Í skipulagi er sett stefna um fyrirkomulag byggðar og mótun umhverfis og þar er landi ráðstafað fyrir mismunandi nýtingu. Teknar eru ákvarðanir og ákvæði sett um hönnun hins byggða umhverfis. Sveitarfélögum ber skylda til að taka faglegar og gagnsæjar skipulagsákvarðanir með aðkomu íbúa og hagaðila.</span>