

Valmynd
Mán. 6. nóv. kl. 9:00 - 12:00 og 13:00 - 17:00
Elmar Hallgríms Hallgrímsson, framkvæmdastjóri hjá Ösp líftryggingafélagi.
Hvernig nærð þú meiri árangri í samningaviðræðum? Á námskeiðinu eru þátttakendur markvisst þjálfaðir til að ná aukinni færni í samningagerð, hvort sem um er að ræða formlega eða óformlega samninga.
Á námskeiðinu verður m.a. farið yfir lykilþætti árangursríkrar samningatækni. Kynntar verða leiðir til að ná fram meiri árangri í samningaviðræðum og hvernig hægt er að stuðla að lausnamiðaðri nálgun við samningsaðila.
Hvernig við undirbúum við okkur fyrir samningaviðræður.
Gagnlegar aðferðir við uppbyggingu á árangursríku samningaferli.
Tækni til að mæta ólíkum samningamönnum.
Hvernig er hægt að ná meiri árangri í samningaviðræðum.
Meiri árangur í samningaviðræðum.
Aukið sjálfstraust til að takast á við krefjandi aðstæður.
Aukin færni í mannlegum samskiptum.
Beiting skapandi hugsunar við úrlausn mála.
Námskeiðið er fyrir alla sem vilja ná meiri árangri í samningaviðræðum. Námskeiðið byggist á raunhæfum verkefnum og fyrirlestrum. Um er að ræða hagnýtt námskeið sem mun gagnast með beinum hætti í starfi sem og einkalífi.
Elmar Hallgríms Hallgrímsson er framkvæmdastjóri hjá Ösp líftryggingafélagi. Elmar er lögfræðingur frá HÍ og hefur lokið meistaranámi í fjármálum fyrirtækja frá sama skóla. Elmar hefur einnig lokið framhaldsnámi í lögfræði við University of Pennsylvania og námi frá Wharton Business School þar sem hann einblíndi m.a. á samningatækni.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Hvernig nærð þú meiri árangri í samningaviðræðum? Á námskeiðinu eru þátttakendur markvisst þjálfaðir til að ná aukinni færni í samningagerð, hvort sem um er að ræða formlega eða óformlega samninga.</span>