

Valmynd
Mán. 27. nóv. kl. 13:00 - 16:00
Þóra Þorgeirsdóttir, doktor í mannauðsstjórnun og lektor við Háskólann á Bifröst.
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.
Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum samtímans um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.
Á námskeiðinu verður fjallað um, frá sjónarhóli starfsfólks og vinnustaða, hvað felst í vellíðan starfsfólks. Skoðaðir verða helstu þættir sem þarf að huga að til að starfsfólki líði vel í starfi með sérstaka áherslu á jafnvægi og samþættingu vinnu og einkalífs og sveigjanleika í starfi, mikilvægi félagslegra tengsla á vinnustöðum og hlutverk leiðtoga á vinnustöðum. Rýnt verður í af hverju það skiptir máli að huga að vellíðan á vinnustöðum og ábyrgð stjórnenda og starfsfólks í því samhengi.
Leitað verður svara við spurningum á borð við: Hvað er vellíðan í starfi, hvernig stuðlum við að vellíðan og hvað getur starfsfólkið sjálft gert til að vinna að eigin vellíðan? Hvað þurfa stjórnendur að vera meðvitaðir um og hvaða áhrif hafa vinnustaðir á líðan starfsfólks?
Hvað felst í vellíðan starfsfólks.
Þætti sem hafa áhrif á vellíðan starfsfólks.
Hvernig vinnustaðir og starfsfólk geta unnið að vellíðan.
Þekking og skilningur á vellíðan í starfi.
Þekking á helstu þáttum sem stuðla að vellíðan í vinnu.
Leiðir til að vinna að eigin vellíðan í vinnu og/eða vellíðan starfsfólksins þíns.
Fyrir alla sem hafa áhuga á líðan á vinnustöðum, bæði stjórnendur og leiðtoga sem eru með mannaforráð og þá sem vilja huga að eigin vellíðan.
Þóra Þorgeirsdóttir er lektor við Háskólann á Bifröst og sviðsstjóri þjónustusviðs Félagsbústaða. Hún er með doktorspróf í mannauðsstjórnun frá Cranfield háskóla í Bretlandi og hefur sérstaka ástríðu fyrir öllu sem snýr að velferð og vellíðan fólks í víðu samhengi.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Vaxandi meðvitund er á vinnustöðum samtímans um mikilvægi þess að huga að vellíðan starfsfólks.</span>