Valmynd
Námskeiðið hefst 21. sept. og lýkur 30. nóv. Kennt er á fimmtudögum aðra hvora viku á kl. 09:00 - 16:30 (6x). Ekki er kennt fim. 19. okt., þá viku er kennt þri. 17. okt. Dagsetningar og efnistök má finna í dagskrá (PDF).
Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir – sérfræðingar í mannauðsmálum og eigendur AUKI – mannauður og stjórnendaráðgjöf, auk gestakennara.
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Mannauðsmál frá A til Ö er nýtt námskeið þar sem fjallað er um hagnýt atriði mannauðsstjórnunar með skýrum hætti. Stjórnendur standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna breytinga á starfsumhverfinu, en í þeim liggja jafnframt fjölmörg tækifæri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velferð starfsmanna og fjölbreytileiki eru á meðal umfjöllunarefna.
Markmið námskeiðsins er að auka sjálfstraust og færni stjórnenda með mannaforráð, m.a. til að leiða einstaklinga og teymi á hvetjandi og uppbyggilegan hátt til aukins árangurs. Að námskeiði loknu ættu þátttakendur að vera betur í stakk búnir til að nýta sér hagnýtar aðferðir mannauðsstjórnunar í starfi sem stjórnendur og stuðla að eigin starfsþróun í síbreytilegu starfsumhverfi.
Stjórnendahlutverkið.
Ráðningarferlið frá A til Ö.
Starfsmannasamtöl, hvatningu, frammistöðu og endurgjöf.
Starfsþróun.
Breytingastjórnun.
Erfið starfsmannamál.
Fjölbreytileiki á vinnustöðum.
Vinnustaðamenningu.
Samskipti og upplýsingaflæði.
Velferð á vinnustað.
Nýja starfsumhverfið – tækifæri og áskoranir.
Aukið öryggi í stjórnendahlutverkinu.
Aukin færni í ráðningum og nýliðamóttöku.
Færni til skilvirkari samskipta og til að takast á við erfið starfsmannamál.
Leikni í að efla liðsheild og stuðla að góðum starfsanda.
Færni í að leiða fjölbreytilegan starfshóp.
Færni í að stuðla að markvissri starfsþróun og leiða breytingar.
Millistjórnendur og nýja stjórnendur sem vilja efla hæfni sína í mannauðsstjórnun.
Alla þá sem vilja tileinka sér fagleg vinnubrögð innan skipulagsheilda og stuðla að heilbrigðu og öflugu starfsumhverfi.
Námskeiðið er einkum sniðið að stjórnendum sem ekki hafa sérstaka menntun í mannauðsstjórnun og stjórnendum smærri fyrirtækja sem ekki eru með sérstaka mannauðsdeild.
Kennarar eru þær Guðrún Jóhanna Guðmundsdóttir og Hildur Halldórsdóttir – sérfræðingar í mannauðsmálum og eigendur AUKI – mannauður og stjórnendaráðgjöf.
Auk þeirra sinna kennslu:
Brynjar Már Brynjólfsson, mannauðsstjóri Isavia.
Guðríður Sigurðardóttir, sérfræðingur í mannauðsmálum og einn eiganda Attentus.
Guðrún Margrét Eysteinsdóttir, lögfræðingur á mannauðssviði Háskóla Íslands.
Þóra Christiansen, aðjúnkt við Háskóla Íslands.
Þóra Þorgeirsdóttir, doktor í mannauðsstjórnun og lektor við Háskólann á Bifröst.
Námskeiðið byggir á fyrirlestrum, umræðum og verklegum æfingum. Hópvinna er unnin á kennsludögum og ekki er gert ráð fyrir að þátttakendur vinni í hópum á milli kennsludaga.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á virka þátttöku og samtal milli þátttakenda. Þannig er stuðlað að auknum lærdómi og tengslamyndun.
Námskeiðið er án einkunna og eininga.
Þátttakendur fá aðgang að námsumsjónarkerfinu Canvas á meðan námskeiði stendur.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-bold">Mannauðsmál frá A til Ö </span><span class="fm-plan">er nýtt námskeið þar sem fjallað er um hagnýt atriði mannauðsstjórnunar með skýrum hætti. Stjórnendur standa frammi fyrir nýjum áskorunum vegna breytinga á starfsumhverfinu, en í þeim liggja jafnframt fjölmörg tækifæri. Fjarvinna og sveigjanlegt starfsumhverfi, velferð starfsmanna og fjölbreytileiki eru á meðal umfjöllunarefna.</span>