Valmynd
Mið. 27. sept. - 15. nóv. kl. 10:00 - 12:00 (8x)
Torfi Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við HÍ. Gestakennari er Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum við HÍ og rithöfundur.
Námskeið á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00 - 12:00
Brennu-Njáls saga er meistarverk íslenskrar sagnaritunar, að líkindum rituð skömmu eftir að þjóðveldinu lauk og íslenskir ráðamenn sóru Noregskonungi hollustueiða 1262-1264. Allir þekkja hetjuna Gunnar, vitringinn Njál og konur þeirra Hallgerði og Bergþóru, en Njála hefur á að skipa fjölþættu persónugalleríi og haganlegri atburðafléttu. Höfundur horfir aftur til þess tíma þegar samfélagið sem hann ólst upp í varð til, í kringum árið 1000. Nú er það breytt og sýn hans á fortíðina er í senn írónísk og harmræn, en umfram allt litrík og lifandi.
Á þessu átta vikna námskeiði verður sagan rakin og staldrað við hnýsilega staði sem varpa ljósi á framvindu sögunnar, persónusköpun og skírskotun til samfélagsgerðar, hugmynda og atburða úr samtímanum. Hugað verður sérstaklega að frásagnarlist höfundar, persónusköpun og siðferðilegum undirtón sögunnar.
Brennu-Njáls sögu.
Hliðstæður við samtíma höfundar á Sturlungaöld.
Frásagnarlist.
Eftirminnilegar persónur.
Betri þekking á einu mesta listaverki bókmenntasögunnar.
Þekking á átökum Sturlungaaldar og tengsl við sagnaritun.
Frásagnarlist fornsagna.
Auðlegð íslenskra miðaldabókmennta.
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um íslenskar fornsögur sem og öllum sem vilja hefja þá vegferð að kynna sér fornbókmenntir. Þetta er tilvalið námskeið fyrir kennara í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla, leiðsögumenn og aðra sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu.
Torfi Tulinius er prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands. Hann hefur skrifað bækur og greinar um íslenskar fornbókmenntir.
Gestakennari í sjöundu viku verður Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum miðaldabókmenntum við HÍ og rithöfundur.
Báðir hafa þeir kennt fjölmörg námskeið hjá Endurmenntun sem notið hafa mikilla vinsælda.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-bold">Námskeið á miðvikudagsmorgnum kl. 10:00 - 12:00<br/></span><span class="fm-plan"><br/>Brennu-Njáls saga er meistarverk íslenskrar sagnaritunar, að líkindum rituð skömmu eftir að þjóðveldinu lauk og íslenskir ráðamenn sóru Noregskonungi hollustueiða 1262-1264. Allir þekkja hetjuna Gunnar, vitringinn Njál og konur þeirra Hallgerði og Bergþóru, en Njála hefur á að skipa fjölþættu persónugalleríi og haganlegri atburðafléttu. Höfundur horfir aftur til þess tíma þegar samfélagið sem hann ólst upp í varð til, í kringum árið 1000. Nú er það breytt og sýn hans á fortíðina er í senn írónísk og harmræn, en umfram allt litrík og lifandi.</span>