Staðnámskeið

Hætt að vinna, farin að leika!

- hlaðborð af ævintýrum við starfslok
Verð 142.900 kr.
Aðeins 1 sæti laust
Í gangi

Bestu jólagjafirnar koma huganum á hreyfingu! Kaupa gjafabréf Endurmenntunar

Mán. og mið. 2. - 16. okt. kl. 16:15 - 19:15

15 klst.

Edda Björgvinsdóttir, leikkona, MA í menningarstjórnun og diplóma í jákvæðri sálfræði og sálgæslu.
Soffía Vagnsdóttir, skrifstofustjóri fagskrifstofu grunnskóla hjá Reykjavíkurborg, MA í menningarstjórnun og í Evrópufræðum, diplóma í jákvæðri sálfræði.
Thelma Björk Jónsdóttir, jóga- og textílkennari hjá Hjallastefnunni, diplóma í jákvæðri sálfræði.
Lilja Lind Pálsdóttir, sérfræðingur í lífeyrisdeild LSR.
Guðrún Bergsteinsdóttir, lögmaður og sáttamiðlari.

Endurmenntun, Dunhaga 7.

Námskeið

Námskeiðið „Hætt að vinna, farin að leika“ er ætlað einstaklingum sem eru að huga að því að ljúka starfsævi, eru að minnka við sig vinnu eða eru þegar hættir á vinnumarkaði.

Rannsóknir sýna að mikilvægt er að huga vel að þessu tímabili ævinnar og undirbúa það þannig að við getum notið okkar, lært, hlegið, kynnst nýju fólki og fundið okkar tilgang í breyttu skipulagi í lífi okkar. Á þessu námskeiði verður boðið upp á hlaðborð af ævintýrum þar sem áherslan er á gleði, sköpun, húmor, fræðslu og valdeflingu m.a. gegnum leikinn.

Markmiðið er að auka vellíðan, hamingju, gleði og bjartsýni. Kúnstin er að vera til staðar fyrir sjálfan sig í sátt og samlyndi við sinn innri mann. Gleðin getur sannarlega orðið að vana!

Jafnframt er fjallað um hagnýt atriði líkt og fjár, lífeyris- og erfðamál. Aukin þekking gefur betur yfirsýn og öryggi þannig að auðveldara er að aðlaga sig að breyttu lífsmynstri.

Á námskeiðinu er fjallað um

Styrkleika.
Húmor og gleði.
Lifa og leika.
Lykilinn að hamingjunni.
Fræðin á bak við það að eldast vel þrátt fyrir mótlæti.
Fjármál við starfslok.
Erfðamál.

Ávinningur þinn

Þú kynnist sjálfri/sjálfum þér á nýjan hátt
Þú kynnist nýju fólki
Þú lærir eitthvað nýtt
Þú uppgötvar styrkleika þína og hvernig þú getur notað þá á annan hátt
Þú færð fræðslu um jákvæða öldrun
Þú færð tækifæri til að valdeflast í frábærum hópi
Þú rifjar upp hvað það er gaman að leika sér og skapa
Þú færð aukna þekkingu og öryggi í fjármálum við starfslok
Þú færð góða yfirsýn yfir væntanlegar lífeyrisgreiðslur
Þú færð aukin skilning á erfðamálum

Fyrir hverja

Fyrir alla þá sem hafa loksins tíma til að njóta, vera, styrkja sig, hlæja og brosa.

Nánar um kennara

Edda Björgvinsdóttir lauk leiklistarnámi frá Leiklistarskóla Íslands og meistaranámi í menningarstjórnun frá Háskólanum á Bifröst. Hún hefur einnig lokið diplómu á meistarastigi í jákvæðri sálfræði og í sálgæslu frá Endurmenntun. Edda hefur víðtæka reynslu af námskeiðs- og fyrirlestrarhaldi af ýmsum toga.

Guðrún Bergsteinsdóttir starfar sem lögmaður hjá Local lögmönnum. Guðrún er cand. jur frá Háskóla Íslands, lögmaður með málflutningsréttindi fyrir héraði og Landsrétti, með mastersgráðu í Evrópuréttu, verðbréfamiðlari og sáttamiðlari.

Lilja Lind Pálsdóttir, viðskipta- og hagfræðingur, þekkir vel til lífeyrismála en hún starfar hjá Lífeyrissjóði starfsmanna ríkisins sem sérfræðingur í lífeyrisdeild. Um langt skeið hefur hún haldið kynningar á lífeyrisréttindum fyrir fyrirtæki og opinberar stofnanir og er hún einnig fulltrúi LSR í fræðslunefnd Landssamtaka lífeyrissjóða.

Soffía Vagnsdóttir er menntaður tónmenntakennari og hefur lokið MA í menningarstjórnun og MA í Evrópufræðum frá Háskólanum á Bifröst. Soffía starfar sem skrifstofustjóri fagskrifstofu grunnskóla á skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborgar. Hún hefur komið að allskyns skapandi verkefnum á sviði tónlistar, menntunar og samfélagsmála. Hún lauk í vor diplómanámi í Jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun. Lokaverkefni hennar fjallaði um jákvæða öldrun og bar heitið
Lifum ríkulega á meðan við lifum".

Thelma Björk Jónsdóttir er menntaður fatahönnuður, listgreinakennari, jóga og hugleiðslukennari. Thelma Björk hefur víðtæka reynslu af kennslu, kennt fjölda námskeiða og kennir í dag textíl og jóga hjá Hjallastefnunni í Reykjavík. Thelma Björk lauk nýverið diplómanámi í Jákvæðri sálfræði frá Endurmenntun. Lokaverkefnið hennar hefur hlotið verðskuldaða athygli en það fjallar um hugmynd hennar um leikskóla fyrir fullorðið fólk.

Aðrar upplýsingar

Mættu með gleðina og ævintýraþrá í hjarta.
Velkomið er að hafa samband við kennara.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Hætt að vinna, farin að leika!

Verð
142900

<span class="fm-plan">N&aacute;mskei&eth;i&eth; &bdquo;H&aelig;tt a&eth; vinna, farin a&eth; leika&ldquo; er &aelig;tla&eth; einstaklingum sem eru a&eth; huga a&eth; &thorn;v&iacute; a&eth; lj&uacute;ka starfs&aelig;vi, eru a&eth; minnka vi&eth; sig vinnu e&eth;a eru &thorn;egar h&aelig;ttir &aacute; vinnumarka&eth;i.</span>