

Valmynd
Bestu jólagjafirnar koma huganum á hreyfingu! Kaupa gjafabréf Endurmenntunar
Mið. 11. okt. kl. 12:30 - 16:30 og fös. 13. okt. kl. 8:30 - 12:30 (2x)
Sveinbjörn Jónsson, verkfræðingur og MPM, samræmingarstjóri hjá Isavia
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Á námskeiðinu er farið yfir helstu hugtök og grunnatriði verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á gerð verkefnisáætlunar sem er grundvöllur að góðri verkefnastjórnun. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hlutverk verkefnastjórans.
Verkefnisgreiningar m.a. hagsmunaaðila- og áhættugreiningar.
Árangursmælikvarða og markmiðasetningu.
Sundurliðun verkefnis í verkþætti og gerð tíma- og kostnaðaráætlana.
Stjórnskipulag verkefnis og samskipti.
Ræs og lúkning verkefna.
Þróar hæfni til að leiða verkefni og vinna í verkefnum til betri árangurs.
Þróar hæfni til að vinna í hópi með raunveruleg verkefni.
Gott upphaf að undirbúningi fyrir IPMD D vottun og meira nám í verkefnastjórnun.
Námskeiðið er fyrir fólk úr öllum geirum atvinnulífsins þar sem vinna í verkefnum er stór hluti af daglegu starfi.
Sveinbjörn Jónsson, M.Sc. í verkfræði og MPM. Sveinbjörn er samræmingarstjóri hjá Isavia.
Kennsla fer fram með fyrirlestrum og hópæfingum þar sem nemendur takast á við aðferðafræði og beita henni á raunveruleg dæmi.
Athugið - ef þátttakandi sækir bæði Verkefnastjórnun - fyrstu skrefin og Verkefnastjórnun - verkefnisáætlun á tveimur samliggjandi misserum er veittur 20% afsláttur af seinna námskeiðinu.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Á námskeiðinu er farið yfir helstu hugtök og grunnatriði verkefnastjórnunar. Lögð er áhersla á gerð verkefnisáætlunar sem er grundvöllur að góðri verkefnastjórnun. Námskeiðið veitir heildarsýn á uppbyggingu verkefna og hlutverk verkefnastjórans.</span>