Valmynd
Mið. 12. okt. kl. 13:00 - 16:00
Hermann Jónsson, sjálfstætt starfandi ráðgjafi og kennari
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.
Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig er hægt að nota Outlook og OneNote til að halda utan um og skipuleggja verkefni. Unnið verður eftir aðferðafræðinni „tómt innbox“ og farið yfir hvernig Outlook er notað í skipulagningu verkefna.
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig Outlook og OneNote samnýta Task og hvernig er hægt að fá yfirlit yfir þau verkefni sem eru á döfinni. Fjallað er um það hvernig OneNote heldur utan um verkefni og skjöl sem tengjast verkefnunum.
QuickSteps
Búa til reglur (Rules)
Tasks
Tags
Forward to OneNote
To do list
Hvernig á að deila Notebook
Samvinna á Notebook
Hvernig taka á stjórnina af Outlook í eigin hendur
Öðlast meiri þekkingu og færni í Outlook.
Aukin þekking á OneNote.
Læra að nota OneNote til að halda utan um verkefni.
Byrjendur í Outlook og OneNote.
Hermann Jónsson hefur starfað í tölvubransanum í fjölda ára, m.a. sem framkvæmdarstjóri hjá tölvuskólanum Isoft, tölvuskólanum NTV og sem fræðslustjóri Advania. Hermann er í dag sjálfstætt starfandi ráðgjafi og kennari.
Þátttakendur þurfa að vera með eigin fartölvu með forritið OneNote 2016 uppsett. Ekki er mælt með Apple tölvum þar sem OneNote á þeim veitir takmarkaða möguleika til notkunar.
Það finnast þrjár útgáfur af OneNote í dag:
• OneNote 2016 (stundum kölluð Desktop útgáfan)
• OneNote for Windows 10 (fylgir Windows 10 stýrikerfinu)
• OneNote Online
OneNote 2016 er sú útgáfa sem inniheldur mesta virkni og þar af leiðandi sú útgáfa sem kennt er á. Á námskeiðinu er farið í hver er munurinn á þessum útgáfum og hvernig þú getur nýtt þér þær allar á mismunandi hátt.
Þar sem OneNote for Windows 10 og Apple útgáfan af OneNote hafa takmarkaðri virkni heldur en OneNote 2016 dugar ekki að hafa eingöngu þær útgáfur á námskeiðinu.
OneNote 2016 er hægt að hlaða niður á slóðinni: www.Onenote.com/download
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Á þessu námskeiði er fjallað um hvernig er hægt að nota Outlook og OneNote til að halda utan um og skipuleggja verkefni. Unnið verður eftir aðferðafræðinni „tómt innbox“ og farið yfir hvernig Outlook er notað í skipulagningu verkefna.</span>