Fjarnámskeið

Microsoft Teams og OneDrive

Afsláttur af námskeiðsgjaldi.
Snemmskráning til og með 27. janúar
Almennt verð 29.400 kr. 26.700 kr.

Þri. 6. feb. kl. 9:00 - 12:00

3 klst.

Atli Þór Kristbergsson, ráðgjafi og kennari

Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.

Námskeið

Teams og OneDrive eru nýjar afurðir frá Microsoft og því mikilvægt að kynnast þeim rétt frá byrjun til að forðast einföld mistök sem gætu átt sér stað. Með Teams fæst skýrari fókus á verkefni þar sem öll umræða, efni og gögn tilheyra einum og sama staðnum. Meiri fókus þýðir minni tími sem fer forgörðum í leit að tengdu efni og því meira gegnsæi.

Á þessu námskeiði er farið yfir bæði OneDrive og Teams frá Microsoft en þau vinna náið saman og varla hægt að nota annað án þess að komast í kynni við hitt á einhverjum tíma. Byrjað er að fara yfir OneDrive en þar kynnumst við hvernig skýjalausnir halda utan um gögnin og hvar við getum nálgast þau. Með Teams fáum við tækifæri að nýta okkur þessa frábæru lausn til samskipta og sækjum gögn frá t.d. OneDrive.

OneDrive

Með OneDrive gefst tækifæri að geyma gögn miðlægt, deila þeim með öðrum og nýta sér útgáfustjórnun. Sumt af þessu á sér stað Í bakgrunni eins og samstilling á breytingum, útgáfustýring og fleira.
Sem hluti af Microsoft 365 áskrift getur viðkomandi því vistað gögn í OneDrive, unnið með þau frá mismunandi tækjum og deilt þeim með innri og ytri aðilum sé það heimilt.

Farið er yfir hvað OneDrive er, hvernig það virkar og hvað er hægt að gera er kemur að deilingu gagna, samvinnu og fleira.

Yfirferð:
OneDrive vs. OneDrive 4Business – hver er munurinn?
Hvað býður OneDrive upp á?
Vistun á gögnum í OneDrive.
Samvinna á gögnum í rauntíma.
Deiling á gögnum frá OneDrive.
Aðgangur að gögnum frá mismunandi tækjum.
Afritun, endurheimtur og skjalastýring.

Teams

Microsoft Teams er fyrir teymi einstaklinga sem saman mynda hóp sem vinnur saman, deilir gögnum og eða vill eiga samskipti sín á milli í gegnum spjallborð svo eitthvað sé nefnt.

Innan hvers teymis má setja upp fleiri en eina rás er endurspeglar skipulag, í kringum ákveðin verkefni eða fyrir sameiginleg áhugamál. Innan rása má halda fundi, vera með hóp-spjall og geymsla gagna ásamt tengingum við önnur kerfi/lausnir. Hægt er að eiga spjall við einstakling alveg eins og við hópa.

Farið er yfir hvað Teams er, hvernig það virkar og hvað er hægt að gera er kemur að samskiptum, samvinnu, aðgengi gagna og fleira.

Yfirferð:
Hvað er Teams og hvað býður það upp á?
Umhverfi Teams (PC, MAC, veflægt) – Er munur á?
Hvernig stofna á hópa og rásir.
Notendur og réttindi – Hvað má?
OneDrive og SharePoint – geymslusvæði.
Aðgengi að öðrum kerfum innan úr Teams.
Munur á opnum hópum og lokuðum.

Fyrir hverja

Námskeiðið er ætlað notendum M365 pakkans sem vilja nýta sér möguleika hans enn betur.

Nánar um kennara

Atli Þór Kristbergsson hefur starfað við upplýsingatækni frá árinu 1998, fyrst sem kerfis- og vefstjóri og sem deildarstjóri upplýsingatæknideildar Íslandsbanka svo eitthvað sé nefnt. Á síðari árum hefur hann einkum sinnt kennslu, ráðgjöf og vefsíðugerð.

Aðrar upplýsingar

Þátttakendur þurfa að hafa Teams aðgang uppsettan áður en að námskeið hefst.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Microsoft Teams og OneDrive

Verð
29400

<span class="fm-plan">Teams og OneDrive eru n&yacute;jar afur&eth;ir fr&aacute; Microsoft og &thorn;v&iacute; mikilv&aelig;gt a&eth; kynnast &thorn;eim r&eacute;tt fr&aacute; byrjun til a&eth; for&eth;ast einf&ouml;ld mist&ouml;k sem g&aelig;tu &aacute;tt s&eacute;r sta&eth;. Me&eth; Teams f&aelig;st sk&yacute;rari f&oacute;kus &aacute; verkefni &thorn;ar sem &ouml;ll umr&aelig;&eth;a, efni og g&ouml;gn tilheyra einum og sama sta&eth;num. Meiri f&oacute;kus &thorn;&yacute;&eth;ir minni t&iacute;mi sem fer forg&ouml;r&eth;um &iacute; leit a&eth; tengdu efni og &thorn;v&iacute; meira gegns&aelig;i.</span>