Valmynd
Þri. 5. og 12. sept. kl. 12:00 - 16:00
Dr. Gísli Kort Kristófersson, sérfræðingur í geðhjúkrun, dósent við Háskólann á Akureyri, aðjúnkt við University of Minnesota og Háskóla Íslands
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.
Á þessu námskeiði verða kynnt helstu hugtök á sviði geðlyfjafræði og hvernig þau nýtast þeim sem fá lyfjameðferð vegna geðrænna raskana. Sérstök áhersla er lögð á að nota nýjustu þekkingu innan geðlyfjafræðinnar fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustunnar á mismunandi vettvangi.
Grunnhugtök á sviði geðlyfjafræði og meðhöndlun þeirra fyrir notanda sem fá meðferð vegna geðrænna raskana.
Hvernig meta á rannsóknarniðurstöður til að ákvarða hversu viðeigandi ákveðnar viðbótarmeðferðir eru sem hluti af meðferðaráætlun notanda.
Hvernig nýta má nýjustu þekkingu á geðlyfjafræði í samvinnu við þverfaglegt teymi ásamt notanda og fjölskyldu hans.
Verður færari um að taka þátt í samræðum um geðlyfjameðferð í þverfaglega teyminu.
Öðlast aukinn skilning á geðlyfjameðferð skjólstæðinga þinna og færð heildrænni sýn á meðferðaráætlun þeirra.
Aukin færni til að meta áhrif aukaverkana ólíkra geðlyfja og viðeigandi leiðir til að takast á við þær.
Aukin þekking á gagnreyndri notkun geðlyfja í meðferð helstu geðrænna áskorana.
Námskeiðið er einkum ætlað heilbrigðisfagfólki sem vinnur með notendum geðheilbrigðisþjónustunnar en ávísar ekki lyfjum sjálft.
Dr. Gísli Kort Kristófersson er sérfræðingur í geðhjúkrun, dósent við Háskólann á Akureyri, aðjúnkt við University of Minnesota og Háskóla Íslands. Gísli útskrifaðist úr hjúkrunarfræði frá HÍ árið 2004, með meistaragráðu í geðhjúkrun frá Minnesota háskóla 2008 og doktorsgráðu með áherslu á geðhjúkrun frá sama skóla árið 2012. Hann hefur starfað í geðheilbrigðisþjónustunni frá 2004, bæði á íslenskum og erlendum vettvangi, á legudeildum fullorðinna, BUGL og í þverfaglegum samfélagsteymum, einkastofu og göngudeildarþjónustu. Ásamt kennslu og fræðastörfum starfar Gísli sem sérfræðingur í geðhjúkrun á einkastofu og á SAk. Gísli hefur reynslu af ávísun lyfja frá Bandaríkjunum og hefur kennt geðlyfjafræði á framhaldsháskólastigi um árabil á Íslandi og Bandaríkjunum.
Um er að ræða 5 stunda námskeið á Zoom sem er klínískt og praktískt í senn og er miðað að raunverulegum fræðsluþörfum markhópsins og klínískum raunveruleika þeirra.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Á þessu námskeiði verða kynnt helstu hugtök á sviði geðlyfjafræði og hvernig þau nýtast þeim sem fá lyfjameðferð vegna geðrænna raskana. Sérstök áhersla er lögð á að nota nýjustu þekkingu innan geðlyfjafræðinnar fyrir notendur geðheilbrigðisþjónustunnar á mismunandi vettvangi.</span>