

Valmynd
Fim. 2. nóv. kl. 12:00 - 16:00
Dr. Sigrún Sigurðardóttir prófessor við Háskólann á Akureyri
Námskeiðið fer fram í rauntíma í fjarkennsluforritinu ZOOM.
Upplýsingar um þátttöku í ZOOM.
Sálræn áföll og áfallamiðuð nálgun er námskeið þar sem fjallað er um skilgreiningar, forvarnir og einkenni sálræns áfalls. En þær geta komið fram og sem líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar. Skoðaðar eru og þær leiðir sem einstaklingar geta valið til úrvinnslu og meðferðar. Einnig er fjallað um áfallamiðaða nálgun og þjónustu.
Á þessu stutta námskeiði er áhersla á fræðslu um forvarnir, einkenni og afleiðingar þeirra sem verða fyrir sálrænum áföllum. Fjallað er um helstu skilgreiningar, forvarnir, einkenni sem geta komið fram og líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar. Skoðaðar eru þær leiðir sem einstaklingar geta valið til úrvinnslu og meðferðar. Fjallað er um áhrif sálrænna áfalla á samfélagið og leiðir sem stuðla að skilvirkari og árangursríkari þverfaglegri þjónustu. Skoðað er hvað fellst í áfallamiðaðri nálgun og þjónustu.
Skilgreiningar og einkenni áfalla.
Afleiðingar áfalla fyrir heilsufar og líðan.
Heildræna nálgun og viðbrögð við áföllum.
Áfallamiðaða þjónustu.
Þekkir skilgreiningar og einkenni hjá einstaklingum sem hafa orðið fyrir áföllum.
Þekkir afleiðingar áfalla fyrir heilsufar og líðan og getur þannig brugðist við í starfi og leik.
Veist hvernig á að nálgast einstaklinga eftir áföll og kannt rétt viðbrögð með heildrænni nálgun.
Þekkir ferli áfallamiðaðrar nálgunar og innleiðingar í kerfið.
Heilbrigðisstarfsfólk, starfsfólk í skólum, viðbragðsaðila, starfsfólk í dómskerfinu.
Dr. Sigrún Sigurðardóttir er prófessor við Háskólann á Akureyri. Hún er með doktorspróf í hjúkrunarfræði frá Háskóla Íslands. Sigrún hefur haldið fjölda fyrirlestra um áföll og ofbeldi, afleiðingar þess og úrræði.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span class="fm-plan">Sálræn áföll og áfallamiðuð nálgun er námskeið þar sem fjallað er um skilgreiningar, forvarnir og einkenni sálræns áfalls. En þær geta komið fram og sem líkamlegar, sálrænar og félagslegar afleiðingar. Skoðaðar eru og þær leiðir sem einstaklingar geta valið til úrvinnslu og meðferðar. Einnig er fjallað um áfallamiðaða nálgun og þjónustu.</span>