Valmynd
Þri. 11. okt. - 29. nóv. kl. 19:30 - 21:30 (8x)
Sverrir Jakobsson, prófessor í miðaldasögu við Háskóla Íslands
Endurmenntun, Dunhaga 7.
Námskeið á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 - 21:30.
Á námskeiðinu verður Sturlunga lesin og rætt verður um helstu átök sögunnar, persónur og leikendur. Fjallað verður um gildi Sturlungu sem heimildar um Sturlungaöld (1220-1264) sem er eitt af helstu átakaskeiðum Íslandssögunnar. Endalok hennar mörkuðu tímamót þar sem Ísland varð hluti af Noregi en einnig vegna þess að þá var ríkisvald innleitt í fyrsta sinn á Íslandi. Einstökum sögum um tímabilið var safnað saman í Sturlungu og má finna ýmis konar sjónarhorn í því riti sem verða tekin til nánari skoðunar í þessu námskeiði.
Á námskeiðinu verður einnig fjallað um pólitíska átakasögu 12. og 13. aldar sem sögur Sturlungu eru lykilheimildir um. Á þessum tíma voru miklar væringar á Íslandi og hörð samkeppni um völd. Valdabarátta höfðingja byggðist á klókindum, hörku og forsjálum ákvörðunum í hjónabandsmálum. Ástir og ættartengsl blönduðust inn í pólitíska refskák og blóðsúthellingar. Að lokum stóðu fáir eftir sem sigurvegarar við nýjar aðstæður. Sérstaklega verður litið á átök Sturlungaaldar og þá m.a. fjallað um hvernig sögur Sturlungu sýna þau í vissu sjónarhorni þar sem framgangur sumra einstaklinga og fjölskyldna er fegraður.
Ófrið Sturlungaaldar.
Sjónarhorn í mismunandi sögum innan Sturlungu.
Sögur Sturlungu sem dæmi um miðaldasagnaritun.
Handrit Sturlungu og uppruna textans.
Aukin þekking á Sturlungu sem sagnariti.
Aukinn skilningur á vinnubrögðum miðaldasagnaritara.
Aukin innsýn í stjórnmál og valdabaráttu Sturlungaaldar.
Aukinn skilningur á samspili stjórnmála og sagnaritunar á 13. öld.
Námskeiðið er ætlað öllu áhugafólki um sögu og bókmenntir miðalda, ekki síst þeim sem hafa áður sótt námskeið Endurmenntunar. Það er tilvalið fyrir kennara í efstu bekkjum grunnskóla og framhaldsskóla, leiðsögumenn og aðra sem tengjast menningartengdri ferðaþjónustu.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.
<span style="font-weight: bold;" >Námskeið á þriðjudagskvöldum kl. 19:30 - 21:30.<br/><br/></span><span class="fm-plan">Á námskeiðinu verður Sturlunga lesin og rætt verður um helstu átök sögunnar, persónur og leikendur. Fjallað verður um gildi Sturlungu sem heimildar um Sturlungaöld (1220-1264) sem er eitt af helstu átakaskeiðum Íslandssögunnar. Endalok hennar mörkuðu tímamót þar sem Ísland varð hluti af Noregi en einnig vegna þess að þá var ríkisvald innleitt í fyrsta sinn á Íslandi. Einstökum sögum um tímabilið var safnað saman í Sturlungu og má finna ýmis konar sjónarhorn í því riti sem verða tekin til nánari skoðunar í þessu námskeiði.</span>