

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 29. jan., 26. feb., 12. og 26. mars kl. 19:30 - 21:30 (4x)
Magnús Þorkell Bernharðsson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Af hverju eru málefni Mið-Austurlanda sífellt í fréttum? Á þessu námskeiði verður fjallað um helstu stef í sögu Mið-Austurlanda með það að markmiði að skýra samhengið og umgjörðina í stjórnmálum og menningu þessa svæðis. Fjallað verður meðal annars um þróunina í Íran, Egyptalandi, Ísrael, Palestínu og Írak.
Athugið!
Fimmtudagana 29. janúar og 26. mars fer námskeiðið fram í rauntíma á ZOOM. Þátttakendur fá sendan ZOOM-hlekk áður en námskeiðið hefst.
Fimmtudagana 26. febrúar og 12. mars fer kennslan fram hjá Endurmenntun, Dunhaga 7.
Magnús Þorkell Bernharðsson er prófessor í nútímasögu Mið-Austurlanda við Williams College í Bandaríkjunum og er gistikennari við Guðfræði-og Trúarbragðafræðideild Háskóla Íslands.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.