

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán. 6. og 13. okt. kl. 20:00 - 22:00
Sigrún Úlfarsdóttir
Hulda Rós Guðnadóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Í tilefni 50 ára afmælis Kvennafrídagsins bjóðum við upp á lifandi og áhugavert tveggja kvölda námskeið þar sem sérfræðingar í myndlist og hönnun veita dýrmæta innsýn í verk kvenna á þessu sviði – bæði í sögulegu samhengi og samtímanum, heima og erlendis. Fáðu einstaka sýn á framlag kvenna í myndlist og hönnun!
Aukið næmi og tenging við listaverk og hönnunarvörur, dýpri upplifun og skilningur sem nýtist bæði faglega og persónulega.
Námskeiðið hentar öllum sem vilja dýpka skilning sinn á myndlist og hönnun eftir konur, kvennasögu og skapandi tjáningu kvenna í samtíma og fortíð. Getur verið sérstaklega gagnlegt t.d. fyrir kennara, starfsfólk safna og leiðsögufólk, Engar forkröfur eru á námskeiðið, aðeins áhugi og opinn hugur.
Kennslan fer fram í fyrirlestraformi með myndrænu efni og lifandi umræðum.
Hulda Rós Guðnadóttir er myndlistarmaður, kvikmyndagerðarmaður og rannsakandi með alþjóðlegan feril. Hulda Rós hefur verið búsett í Berlín í 15 ár og starfar sjálfstætt á mörkum myndlistar, kvikmyndagerðar og fræðilegrar rannsóknar. Verk hennar hafa verið sýnd á fjölmörgum sýningarstöðum víða um heim. Hún er stundakennari við Listaháskóla Íslands og hefur áralanga þjálfun í að rýna í borgarlandslag og samfélag út frá sjónarhorni lista.
Sigrún Úlfarsdóttir er alþjóðlegur tískuhönnuður með djúpar rætur í franskri tísku og skapandi menningu. Sigrún hefur verið búsett í París í 30 ár og unnið sem hönnuður hjá stórum tískuhúsum á borð við Karl Lagerfeld, Swarovski og Hervé Léger. Hún hefur einnig hannað ilmvatnsflöskur og snyrtivöruumbúðir fyrir þekkt frönsk merki, m.a. Jean-Paul Gaultier. Áður starfaði hún sem búningahönnuður í Moskvu í fimm ár og í dag rekur hún eigin línur af skóm og skartgripum undir nafninu Divine Love. Sigrún býður dýrmæta innsýn í sögu, strauma og áhrif kvenna í tísku og hönnun – frá verkstæðum stórborganna til persónulegrar sköpunar.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.