Staðnámskeið

Franska fyrir byrjendur I

Aðeins 5 sæti laus

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. og fim. 19. ágúst - 25. sept. kl. 16:40 - 18:10 (12x)

18 klst.

Háskóli Íslands, Veröld - hús Vigdísar

Peningur 75.000 kr.
Námskeið

Í samstarfi við Mála- og menningardeild við Hugvísindasvið HÍ

Þetta námskeið er fyrir alla þá sem vilja ná tökum á helstu undirstöðuatriðum í frönsku máli á skömmum tíma. Engrar forkunnáttu er krafist.
Athugið að námskeiðið gildir ekki til eininga í BA-námi í frönsku.

Á námskeiðinu er fjallað um

Lögð er jöfn áhersla á lestur, hlustun, ritun og talfærni. Farið verður yfir öll helstu grunnhugtök í franskri málfræði.

Námskeiðið er kennt í 6 vikna lotu á fyrri hluta haustmisseris, tvisvar í viku, 80 mínútur í senn kl. 16:40 – 18:10.

Hæfniviðmið:
Í lok námskeiðs hafa nemendur:

  • náð tökum á einföldum orðaforða daglegs lífs og geti tjáð sig um sjálfa sig, nám, starf, o.s.frv.
  • öðlast skilning á grunnatriðum franskrar málfræði
  • kynnst algengustu málhljóðum í frönskum framburði

Nemendur geta:

  • lesið einfalda texta á frönsku eins og t.d. upplýsingaskilti
  • skilið einfalt hlustunarefni á frönsku
  • ritað einfaldan texta á frönsku eins og t.d. fylla út eyðublöð með persónulegum upplýsingum.

Nemendur munu einnig öðlast innsýn í menningu og þjóðfélög frönskumælandi landa

Námskeiðið er kennt í samstarfi við Endurmenntun HÍ en nemendur HÍ greiða ekki gjald fyrir þátttöku og er þeim bent á að skrá sig í gegnum Uglu.

Sjá kennsluskrá hér.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Franska fyrir byrjendur I

Verð
75000