

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 25. nóv. og 2. des. kl. 19:30 - 21:30 hjá Endurmenntun á Dunhaga 7. Mán. 5. jan. kl. 14:00 - 16:00 heimsókn í Þjóðleikhúsið. Fim. 22. jan. kl. 20:00 forsýning í Þjóðleikhúsinu.
Endurmenntun Háskóla Íslands
Námskeiðið er í tengslum við uppfærslu Þjóðleikhússins á söngleiknum Ormstungu, sem byggður er á Gunnlaugs sögu Ormstungu, eftir Hafstein Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, í leikstjórn Gísla Arnar Garðarssonar.
Ormstunga er glænýr íslenskur söngleikur. Höfundarnir eru af yngstu kynslóð leikhúslistafólks, og ná með glæsilegum hætti að vinna úr menningararfi okkar í nútímalegu og heillandi formi. Fjölmargir leikarar Þjóðleikhússins koma fram í þessari kraftmiklu sýningu sem margt af okkar færasta leikhúslistafólki tekur þátt í að skapa. Ormstunga er söngleikur fyrir unga sem aldna, með grípandi og fjölbreyttri tónlist.
Gunnlaugur Illugason, Hrafn Önundarson og Helga hin fagra Þorsteinsdóttir mynda einn frægasta ástarþríhyrning fornbókmenntanna. Of lengi hafa örlögin hrjáð þau en nú, fyrir framan áhorfendur, fá þau loksins að gera upp sín mál! Þetta er saga um drauma, ástir og ill örlög. Frískleg og kraftmikil endursköpun á íslenskum menningararfi.
Dagskrá námskeiðs:
Þriðjudagur 25. nóvember kl. 19:30 - 21:30: Torfi H. Tulinius fjallar um Gunnlaugs sögu Ormstungu í húsnæði Endurmenntunar, Dunhaga 7.
Þriðjudagur 2. desember kl. 19:30 - 21:30: Hafsteinn Níelsson og Ólíver Þorsteinsson, fjalla um tilurð og þróunarferli söngleiksins og stöðu söngleikjasmíða á Íslandi í dag.
Mánudagur 5. janúar kl. 14:00 - 16:00: Heimsókn á æfingu í Þjóðleikhúsinu og umræður með Gísla Erni Garðarssyni, leikstjóra sýningarinnar.
Fimmtudagur 22. janúar kl. 20:00: Forsýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins.
Miði á forsýninguna er innifalinn í námskeiðsgjaldi.
Námskeiðið hentar öllum þeim sem hafa áhuga á leikhúsi, söngleikjum og Íslendingasögum.
Ef þátttakendur vilja undirbúa sig fyrir námskeiðið er gott að lesa Gunnlaugs sögu ormstungu sem hefur m.a. verið gefin út í skólaútgáfu með skýringum og er aðgengileg á vef Snerpu.
Torfi H. Tulinius er prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands og hefur í rannsóknum sínum fyrst og fremst fengist við íslenskar miðaldabókmenntir.
Hafsteinn Níelsson útskrifaðist af sviðshöfundabraut LHÍ vorið 2025.
Ólíver Þorsteinsson hefur sent frá sér barnabækur og rekur Leó bókaútgáfu.
Þeir Hafsteinn og Óliver hafa samið tvo söngleiki, Ormstungu og Þorskasögu, og vinna nú að þriðja söngleiknum.
Gísli Örn Garðarsson hefur leikstýrt fjölda leiksýninga hér á landi og erlendis, auk þess sem hann hefur leikið í fjölmörgum sýningum og kvikmyndum.
Melkorka Tekla Ólafsdóttir, leiklistarráðunautur Þjóðleikhússins, hefur umsjón með námskeiðinu.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.