

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Fim. 30. okt. kl. 9:00 - 12:00 og fim. 20. nóv. kl. 13:00 - 15:00. Auk þess einn einkatími hjá markþjálfa á námskeiðstímabilinu. (3x)
Lella Erludóttir
Endurmenntun Háskóla Íslands
Árangur stjórnenda byggir í auknum mæli á hæfni þeirra til að laða fram það besta í sínu fólki. Markþjálfun hefur fest sig í sessi sem öflug og áhrifarík aðferðafræði sem veitir stjórnendum verkfæri til að skapa skýrari sýn, meiri ábyrgð og öflugri árangur hjá teymum sínum.
Á þessu námskeiði læra stjórnendur að tileinka sér grunnþætti markþjálfunar og hvernig þeir geta nýtt þá í daglegu starfi. Þátttakendur munu öðlast skilning á hvernig öflug samtöl, virk hlustun og markvissar spurningar geta valdeflt starfsfólk, aukið sjálfstraust, ýtt undir frumkvæði og leyst úr læðingi leynda hæfileika innan vinnustaðarins.
Námskeiðið styrkir stjórnendur í að:
Stjórnendur sem tileinka sér aðferðafræði markþjálfunar eru betur í stakk búnir til að skapa heilbrigða og jákvæða vinnustaðamenningu, draga úr streitu, og efla árangur sinn og starfsmanna sinna. Með markþjálfun öðlast þeir mikilvæga færni sem eykur skilvirkni og ánægju í starfi og styður við langtíma velgengni fyrirtækisins.
Uppsetning námskeiðs:
Námskeiðið er fyrir stjórnendur sem vilja styrkja eigin leiðtogahæfni, læra nýjar aðferðir i stjórnun og ýta undir aukna ábyrgð og vöxt á vinnustaðnum.
Þátttakendur hafa aðgang að kennara meðan á námskeiði stendur og munu fá stuðning til að tileinka sér lærdóm námskeiðsins og innleiða hann í sín daglegu störf.
Þátttakendur fá einnig eitt markþjálfasamtal hver.
Lella Erludóttir er PCC vottaður markþjálfi, stjórnendaþjálfi og mannauðsráðgjafi með fjölbreytta reynslu úr íslensku atvinnulífi. Hún er sérhæfð í starfstengdri markþjálfun og starfsráðgjöf með fólki sem vill kynnast eigin möguleikum og styrk, setja sér markmið, ná jafnvægi vinnu og einkalífs og bæta eigið líf.
Lella er sérleg áhugakona um loddaralíðan og brennur fyrir því að styðja fólk í að stiga inn í styrkleika sína og öðlast aukið sjálfstraust og styrk í starfi.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.