

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Þri. 28. okt. kl. 13:00 - 16:30
Kristinn Óskarsson
Endurmenntun Háskóla Íslands
Hvers vegna er starfsánægja mikilvæg? Á námskeiðinu er leitast við að varpa ljósi á hvað drífur starfsmenn áfram. Fjallað er um áhrif gilda og menningar á starfsandann. Komið er inn á þá þætti sem stuðla að bættum starfsanda og það viðhorf sem er eftirsóknarvert.
Farið verður yfir ólíkar þarfir starfsmanna eftir mismunandi eiginleikum þeirra og hvaða kynslóð þeir tilheyra. Leitast verður við að greina hvað hægt er að gera til að bæta starfsandann og hvað virkar síður. Sérstök áhersla er lögð á að skoða hvaða áhrif stjórnendur hafa á starfsmenn, upplifun þeirra og líðan.
Stjórnendur í fyrirtækjum, stofnunum og félögum og áhugafólk um efnið.
Kristinn Óskarsson er reyndur stjórnandi, mannauðsstjóri og körfuboltadómari ásamt því að vera alþjóðlegur dómaraleiðbeinandi. Kristinn er íþróttakennaramenntaður, markþjálfi og með MBA gráðu frá HÍ.
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.