Staðnámskeið

ISO 14001 Umhverfisstjórnunarkerfi – Frá áætlun til árangurs

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 18. og fim. 20. nóv. kl. 9:00 - 12:00 (2x)

6 klst.

Guðrún Ólafsdóttir

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 55.900 kr.
Snemmskráning til og með 8. nóvember. Almennt verð er 61.500 kr.
Námskeið

Í samstarfi við Staðlaráð Íslands

Vaxandi áhersla á umhverfismál kallar á aðgerðir innan fyrirtækja, stofnana og samtaka. Að setja umhverfismál í öndvegi hefur jákvæð áhrif á rekstur og auðveldar skipulagsheildum að uppfylla lögboðnar kröfur. Á námskeiðinu verður farið í uppbyggingu, markmið og innleiðingu umhverfisstjórnunarkerfis.

Alþjóðlegi staðallinn ÍST EN ISO 14001:2015 Umhverfisstjórnunarkerfi – Kröfur með leiðbeiningum er lagður til grundvallar á námskeiðinu. Hann er kröftugt verkfæri til að tryggja gott verklag sem styður við ábyrga afstöðu og aðgerðir varðandi umhverfismál. Hann leiðir okkur í gegnum þau mikilvægu atriði sem þarf að huga að, hvernig við berum okkur að til að gera formlega grein fyrir ýmsum þáttum og tryggja stöðugar umbætur.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Innihald ÍST EN ISO 14001:2015 Umhverfisstjórnunarkerfi – Kröfur með leiðbeiningum
  • Uppbyggingu umhverfisstjórnunarkerfis, innleiðingu og viðhorf
  • Ferlanálgun og tilgang hennar
  • Mikilvægi skjölunar og skráninga
  • Rekjanleika
  • Möguleg samlegðaráhrif við aðra staðla

Ávinningur þinn

  • Þú skilur hvernig umhverfisstjórnun skilar árangri
  • Þú öðlast hvata til að vinna samkvæmt kröfum ISO 14001
  • Aukin þekking á ISO 14001
  • Færð praktísk ráð til að koma upp umhverfisstjórnunarkerfi sem hentar þínu fyrirtæki
  • Færð praktísk ráð til að flétta 14001 saman við ISO 9001 Gæðastjórnunarkerfi

Fyrir hverja

Fyrir alla áhugasama um umhverfisstjórnun, sérstaklega hagnýtt fyrir stjórnendur og aðra sem þurfa að styðja við innleiðingu og notkun á umhverfisstjórnunarkerfum svo að innleiðing takist og skili sér inn í vinnustaðamenninguna.

Nánar um kennara

Guðrún Ólafsdóttir, M.Sc. í viðskiptafræði og með iðnmenntun. Hefur áralanga reynslu af gerð, innleiðingu og viðhaldi stjórnkerfa, bæði hérlendis sem erlendis í fjölbreyttu starfsumhverfi.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

ISO 14001 Umhverfisstjórnunarkerfi – Frá áætlun til árangurs

Verð
55900