Staðnámskeið

Surtsey: Náttúruundrið í miðju Atlantshafi

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Þri. 11. og 18. nóvember kl. 19:30 - 21:30 (2x)

4 klst.

Olga Kolbrún Vilmundardóttir

Birgir Vilhelm Óskarsson

Endurmenntun Háskóla Íslands

Peningur 24.900 kr.
Snemmskráning til og með 1. nóvember. Almennt verð er 27.400 kr.
Námskeið

Surtsey varð til í eldgosi neðansjávar árið 1963 - 1967 og er einstakur staður á heimsvísu þar sem jarðfræðilegir kraftar og þróun lífríkis fara hönd í hönd. Surtsey hefur verið undir strangri vernd frá 1965 og var samþykkt á heimsminjaskrá UNESCO 2008 á grundvelli þeirra rannsókna sem þar hafa farið fram. Á þessu námskeiði fá þátttakendur innsýn í hvernig eyjan varð til og hvernig lífríki hennar hefur þróast frá upphafi. 

Námskeiðinu verður skipt í tvo hluta: fyrri hlutinn snýr að jarðfræði Surtseyjar – myndun, eldvirkni og þróun landslags – en seinni hlutinn fjallar um líffræðina, landnám lífvera, framvindu og vistkerfi eyjunnar.

Á námskeiðinu er fjallað um

  • Jarðfræðilega myndun Surtseyjar árið 1963, einkenni hrauns og gjósku
  • Þróun landslagsins á eyjunni í gegnum árin
  • Uppgötvanir sem komu jarðfræðingum á óvart.
  • Landnám og framvindu á nýmynduðu landi
  • Plöntur, fugla og aðrar lífverur sem numið hafa eyjuna
  • Rannsóknir á vistkerfi og mikilvægi Surtseyjar í vísindalegu samhengi.

Ávinningur þinn

  • Skilningur á því hvernig nýtt land myndast í eldgosum
  • Innsýn í náttúruvísindalegar rannsóknir á Surtsey
  • Dýpri þekking á samspili jarðfræði og líffræði eyjunnar.

Fyrir hverja

Námskeiðið er fyrir alla náttúruunnendur sem hafa áhuga á jarðfræði, líffræði og sögu Surtseyjar. Það er ætlað almenningi en hentar einnig vel þeim sem starfa í fræðslumálum, fjölmiðlum eða við leiðsögn ferðamanna.

Aðrar upplýsingar

Ekki er þörf á sérstökum undirbúningi fyrir námskeiðið. Margt hefur verið ritað og birt um Surtsey og fyrir áhugasama mætti t.d. benda á tilnefningarskýrsluna til UNESCO en í henni er góð samantekt um rannsóknir og niðurstöður frá Surtsey, rannsóknarit Surtseyjarfélagsins, Surtsey Research, en í því eru birtar niðurstöður fjölmargra rannsókna, grein Borgþórs Magnússonar o.fl. í Náttúrufræðingnum 2023 um landnám plantna og gróðurframvindu, og aðgengilega og vel myndskreytta samantekt í bókinni Surtsey í sjónmáli eftir Erling Ólafsson og Lovísu Ásbjörnsdóttur (útgáfa: Edda).

Nánar um kennara

Birgir Vilhelm Óskarsson er jarðfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og meðlimur í stjórn Surtseyjarfélagsins. Olga Kolbrún Vilmundardóttir er landfræðingur hjá Náttúrufræðistofnun Íslands og varaformaður Surtseyjarfélagsins.

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Surtsey: Náttúruundrið í miðju Atlantshafi

Verð
24900