Staðnámskeið

Íslenska B1 (sumarnámskeið)

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán., þri. og fim. 2. - 27. júní kl. 16:40 - 18:10

18 klst.

Háskóli Íslands - sjá stundatöflu

Peningur 75.000 kr.
Námskeið

Í þessu námskeiði munum við lesa stutta texta sem munu gefa nemendum tækifæri til að þjálfa sig í lesskilningi og auka við orðaforða sinn. Nemendur munu gera ritunar- og talæfingar tengdar efni þessara texta. Í gegnum þessa texta munum við líka skoða ákveðin málfræðiatriði og auka við þann grunn sem nemendur hafa fyrir og verða þessi atriði æfð í gegnum stuttar æfingar, bæði skriflegar og munnlegar.

Námskeiðið hefst 2. júní og því lýkur 27. júní.

 

Hæfniviðmið:

  • Nemendur geta skilið aðalatriði venjulegs talmáls, um t.d. vinnu, skóla, frístundir og málefni líðandi stundar.
  • Nemendur geta lesið texta sem inniheldur algeng orð og skilið lýsingar á atburðum, tilfinningum og óskum.
  • Nemendur geta óundirbúnir tekið þátt í samræðum um efni sem þeir þekkja, hafa áhuga á eða tengjast daglegu lífi, t.d. fjölskyldu, áhugamálum, starfi, ferðalögum og málefnum líðandi stundar.
  • Nemendur geta talað um fyrri reynslu sína, líf sitt núna og framtíðardrauma. Þeir geta rökstutt stuttlega og útskýrt ákvarðanir sínar og fyrirætlanir. Þeir geta sagt sögu eða sagt frá söguþræði í bók eða kvikmynd og lýst viðbröðum sínum.
  • Nemendur geta skrifað einfaldan samfelldan texta um efni sem þeir þekkja eða hafa áhuga á. Þeir geta skrifað bréf sem lýsa reynslu og hughrifum.

Hæfniviðmiðin byggjast á Samevrópska matsrammanum fyrir tungumál: https://europass.cedefop.europa.eu/sites/default/files/cefr-is.pdf

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Íslenska B1 (sumarnámskeið)

Verð
75000