

Valmynd
Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!
Mán., þri. og fim. 2. - 27. júní kl. 16:40 - 18:10
Fer fram í rauntíma á ZOOM
Þetta námskeið er framhaldsnámskeið þar sem unnið er að uppbyggingu orðaforða um dagleg málefni og grunnatriði í málfræði sem koma nemendum lengra í daglegum samskiptum. Þetta á m.a. við um beygingu sagnorða í nútíð og þátíð, kyn nafnorða og fallbeygingu þeirra og orðaröð í setningum. Efnið byggist helst á orðaforða um daglegar athafnir, t.d. um heimili, fjölskyldu og menningu. Verkefni eru ýmist unnin í hópum, eins og skilningsverkefni, eða sem einstaklingsvinna, eins og ritunarverkefni og kynningar fyrir framan hópinn. Námskeiðið hentar bæði fyrir þá sem stefna á frekara nám í íslensku sem öðru máli og þá sem vilja sterkari grunn fyrir daglega notkun málsins.
Námskeiðið hefst 2. júní og því lýkur 27. júní.
Hæfniviðmið:
Hæfniviðmiðin byggjast á Samevrópska matsrammanum fyrir tungumál: https://europass.cedefop.europa.eu/sites/default/files/cefr-is.pdf
Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.