Fjarnámskeið

Íslenska A2 (sumarnámskeið)

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán., þri. og fim. 2. - 27. júní kl. 8:20 - 9:50

18 klst.

Fer fram í rauntíma á ZOOM

Peningur 75.000 kr.
Námskeið

Þetta námskeið er ætlað nemendum með lítinn grunn í íslensku. Í námskeiðinu eru nemendur fyrst og fremst þjálfaðir í munnlegum samskiptum á íslensku og skilningi á mæltu máli. Setningar sem þarf til að bjarga sér í daglegu lífi eru þjálfaðar og nemendur vinna að hlustunarverkefnum innan og utan kennslustofu. Ýmis framburðaratriði eru æfð, m.a. tónfall og hljóðaklasar. Orðaforðinn verður æfður bæði skriflega og munnlega með verkefnum í kennslustundum. Nemendur verða að halda stuttum kynningum fyrir framan bekkinn til að æfa rennslið. Nemendur verða einnig þjálfaðir í lesskilningi og ritun stuttra texta. Ýmis málnotkunar- og málfræðiatriði verða tekin fyrir í samhengi við orðaforðann og umræðuefnin, m.a. nútíð, þátíð og fallbeyging.

Námskeiðið verður kennt mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga.

Námskeiðið hefst 2. júní og því lýkur 27. júní.

 

Hæfniviðmið:

  • Nemendur geti skilið algeng orð og einfaldar setningar, t.d. um daglegar athafnir, vinnu og frí þegar fólk talar hægt og skýrt.
  • Nemendur geti myndað einföld orðasambönd og setningar í mæltu máli, t.d. til að kynna sig, tala um veðrið og staði. Nemendur geti átt í fjölbreyttum samskiptum vegna þjónustu.
  • Nemendur geti lesið og skilið einfaldar setningar, m.a. um allt framangreint.
  • Nemendur geti skrifað stutta og einfalda texta.
  • Nemendur læri sjálfstæð vinnubrögð til að halda tungumálanámi sínu áfram þegar námskeiðið lýkur.

Hæfniviðmiðin byggjast á Samevrópska matsrammanum fyrir tungumál: https://europass.cedefop.europa.eu/sites/default/files/cefr-is.pdf

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Íslenska A2 (sumarnámskeið)

Verð
75000