Staðnámskeið

Íslenska A1+ (sumarnámskeið)

Vantar þig aðstoð við nýskráningu inn á Mínar síður? Horfðu á leiðbeiningarmyndbandið!

Mán., þri. og fim. 2. - 27. júní kl. 8:20 - 9:50

18 klst.

Háskóli Íslands - sjá stundatöflu

Peningur 75.000 kr.
Námskeið

Námskeiðið er ætlað byrjendum í íslensku. Í námskeiðinu eru nemendur fyrst og fremst þjálfaðir í munnlegum samskiptum á íslensku og skilningi á mæltu máli. Einfaldir frasar sem þarf til að bjarga sér í algengum aðstæðum daglegs lífs eru þjálfaðir og nemendur vinna að hlustunarverkefnum innan og utan kennslustofu. Farið er í grundvallaratriði íslensks hljóðkerfis og framburður er markvisst æfður. Nemendur verða einnig þjálfaðir í lesskilningi og ritun mjög stuttra og einfaldra texta. Orðaforði um daglegt líf verður æfður munnlega í kennslustundum og skriflega með verkefnum. Ýmis málnotkunar- og málfræðiatriði verða tekin fyrir í samhengi við orðaforðann og umræðuefnin, m.a. sagnasambönd og grunnatriði í beygingu sagnorða og fallorða.

Námskeiðið hefst 2. júní og því lýkur 27. júní.

Boðið er upp á námskeiðið bæði í stað- og fjarnámi, með þeim fyrirvara að ef ekki næst nægilegur nemendafjöldi í stað- eða nethópnum, þá verður þessi hópur felldur niður og nemendur verða allir saman í einum hóp.

Hæfniviðmið

  • Nemendur geti skilið algeng orð og einfaldar setningar um t.d. verð og mat þegar fólk talar hægt og skýrt og er tilbúið að endurtaka.
  • Nemendur geti myndað einföld orðasambönd og setningar í mæltu máli, t.d. til að kynna sig, tala um daglegt líf og líðan.
  • Nemendur geti lesið og skilið einfaldar setningar sem varða persónulagi hagi og daglegt líf.
  • Nemendur geti skrifað stutta og einfalda texta og fyllt út eyðublöð með persónulegum upplýsingum.
  • Nemendur læri sjálfstæð vinnubrögð til að halda tungumálanámi sínu áfram þegar námskeiði lýkur.

Hæfniviðmiðin byggjast á Samevrópska matsrammanum fyrir tungumál: https://europass.cedefop.europa.eu/sites/default/files/cefr-is.pdf

Styrkur

Átt þú rétt á styrk frá þínu stéttarfélagi eða Vinnumálastofnun til að sækja námskeið eða nám?
Kannaðu málið HÉR.

Íslenska A1+ (sumarnámskeið)

Verð
75000